Icelandic
Birt: 2014-04-02 13:07:39 CEST
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
Fyrirtækjafréttir

Niðurstöður almenns hlutafjárútboðs Sjóvár

Umframeftirspurn var eftir hlutabréfum í Sjóvá í almennu hlutafjárútboði sem lauk 31. mars síðastliðinn. Heildarfjöldi móttekinna áskrifta var um 7.800. Útboðsgengi í tilboðsbók A, þar sem tekið var við áskriftum að fjárhæð kr. 100.000 til kr. 10.000.000, er 11,90 krónur á hlut og verða 10% hluta í félaginu seldir á því verði. Útboðsgengi í tilboðsbók B, þar sem tekið var við áskriftum að fjárhæð yfir kr. 10.000.000, er 13,51 króna á hlut og verða 13% hluta í félaginu seldir á því verði. Heildarstærð útboðsins nemur 23% af útgefnu hlutafé í félaginu eða 366.279.829 hlutum og er heildarsöluandvirði þeirra 4,7 milljarðar króna. Heildareftirspurn í útboðinu var 35,7 milljarðar króna.

Í tilboðsbók A bárust um 7.600 áskriftir að fjárhæð 20,4 milljarðar króna. Mikil þátttaka í tilboðsbók A leiðir til þess að úthlutun á hverja áskrift, að undanskildum áskriftum fastráðinna starfsmanna Sjóvár og viðskiptavaka, nemur að hámarki 227 þúsund krónum að kaupverði. Áskriftir undir framangreindri fjárhæð og áskriftir fastráðinna starfsmanna Sjóvár eru ekki skertar. Áskriftir viðskiptavaka eru skertar minna.

Í tilboðsbók B bárust 232 áskriftir að fjárhæð 15,3 milljarðar króna.  Áskriftir voru metnar á grundvelli verðs og verða hlutir seldir til hæstbjóðenda í útboðinu. Samþykktar áskriftir voru 32. Ekkert kemur í hlut þeirra sem buðu undir 13,51 krónu á hlut.

Seljendur í útboðinu eru SF 1 slhf., SAT eignarhaldsfélag hf. og Íslandsbanki hf.

Íslandsbanki er umsjónaraðili útboðsins og töku hlutabréfa í Sjóvá til viðskipta. Tilkynning um úthlutun og greiðslufyrirmæli verða send fjárfestum fyrir lok dags 3. apríl 2014. Gert er ráð fyrir að gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði 9. apríl 2014 og að greidd hlutabréf verði afhent kaupendum þann 10. apríl 2014. Fyrsti viðskiptadagur með hlutabréf í Sjóvá getur þannig fyrst orðið þann 11. apríl 2014, en NASDAQ OMX Iceland mun tilkynna um slíkt með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár: „Mikil þátttaka í útboðinu er okkur hjá Sjóvá mikið gleðiefni og í takti við þann meðbyr og áhuga sem við höfum fundið í aðdraganda þess. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá hversu fjölmennur hópur almennra fjárfesta tók þátt en hluthafahópur félagsins verður einn sá fjölmennasti meðal skráðra félaga og eignarhald þess vel dreift. Fyrir hönd Sjóvár býð ég nýja hluthafa velkomna og hlakka til samstarfsins.“

 

 

Nánari upplýsingar veita:

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, í síma 440 2002

Dögg Hjaltalín, Íslandsbanka, í síma 440 3925, tölvupóstur: dogg.hjaltalin@islandsbanki.is