English Icelandic
Birt: 2014-03-20 17:37:20 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Nýir samningar við viðskiptavaka

Icelandair Group hf. hefur gert nýja samninga um viðskiptvakt með hlutabréf félagsins í samræmi við 116. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti við Íslandsbanka hf. og Landsbankann hf. Samningarnir taka gildi frá og með 1. apríl nk. þannig að síðasti dagur viðskiptavaktar samkvæmt núverandi samningum verður því 31. mars nk. Meginatriði samninganna eru eftirtalin:  

  Íslandsbaki hf. Landsbankinn hf.
Lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða að nafnvirði 2.000.000 2.000.000
Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern að nafnvirði 9.000.000 12.000.000
Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum 1,5% 1,5%
Hámarksfrávik frá síðasta viðskiptaverði 3% 3%
Frestur til að endurnýja tilboð sem hefur verið tekið að fullu 10 mínútur 10 mínútur

 

Frekari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801