Icelandic
Birt: 2014-03-17 21:32:02 CET
Ríkisútvarpið ohf.
Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá stjórn Ríkisútvarpsins ohf

 

Uppfærð rekstraráætlun Ríkisútvarpsins ohf. var kynnt á fundi stjórnar sem fram fór í dag. Liggur fyrir að tap af rekstri félagsins á yfirstandandi rekstrarári verður umtalsvert meira en áætlanir stjórnenda RÚV gerðu ráð fyrir, jafnvel þótt að gripið hafi verið til umfangsmikilla niðurskurðaraðgerða á tímabilinu. Nú er gert ráð fyrir að tap af rekstri félagsins verði 305 m. kr. fyrstu 6 mánuði ársins og 357 m. kr. á rekstrarárinu öllu.

 

Ljóst er að frávikið frá þeim áætlunum sem áður höfðu verið lagðar fram er umtalsvert og útlit er fyrir að tapið af rekstrinum muni hafa veruleg áhrif á eigið fé Ríkisútvarpsins, en það var við lok síðasta rekstrarárs 653 m. kr. Því er ljóst að hlutfall eiginfjár Ríkisútvarpsins  fer undir 8% mörkin sem skilgreind eru í lánasamningum sem það hefur gert. Rétt er að taka fram að RÚV hefur upplýst viðskiptabanka sinn um stöðuna og átt jákvæð samskipti um áframhaldandi samstarf.

 

Niðurstaða uppfærðrar rekstraráætlunar er stjórn Ríkisútvarpsins mikil vonbrigði og hefur hún óskað eftir að fram fari óháð úttekt á fjármálum þess. Stjórn hefur jafnframt óskað eftir því við nýráðinn útvarpsstjóra, Magnús Geir Þórðarson, sem hóf störf í síðustu viku að hann fari yfir rekstraráætlanir með það að markmiði að reksturinn komist í jafnvægi sem fyrst. Stjórn telur telur raunhæft að það muni takast og að framtíðarhorfur kalli ekki á nýjar niðurskurðaraðgerðir til viðbótar við þær sem þegar hefur verið ráðist í á rekstrarárinu.

 

Nánari upplýsingar veitir formaður stjórnar Ríkisútvarpsins ohf., Ingvi Hrafn Óskarsson, í síma 775-8830.