Icelandic
Birt: 2014-03-17 10:26:46 CET
Sýn hf.
Fyrirtækjafréttir
Fjarskipti hf. : Vodafone stefnir Tali til greiðslu viðskiptaskuldar
Vodafone (Fjarskipti hf.) hefur stefnt Tali (IP-Fjarskiptum ehf.)
fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu reikningsskuldar, vegna
fjarskiptaþjónustu
sem Vodafone veitti Tali á grundvelli samninga á árunum 2011
og 2012. Krafa
Vodafone nemur  rúmlega 117 milljónum króna og krefst félagið
þess að fá þá
upphæð greidda auk vaxta.

Til grundvallar kröfunni liggja
reikningar frá Vodafone sem Tal hefur ekki
greitt, auk eftirstöðva af
reikningum sem Tal hefur greitt að hluta.

Það er afstaða Vodafone að
fyrirliggjandi samningar milli félaganna feli í sér
ótvíræða greiðsluskyldu af
hálfu Tals og að málatilbúnaður Vodafone byggi á
sterkum lagalegum grunni. Rétt
er að taka fram að óvissa ríkir um niðurstöðu
dómsmálsins. Verði Tal dæmt til
greiðslu á framangreindri kröfu Vodafone mun það
hafa jákvæð áhrif á fjárhag
Vodafone.

Áður uppgefið um málið í skráningarlýsingu Fjarskipta hf. (bls. 17
í
útgefandalýsingu) dags. 19. nóvember 2012:

"Ágreiningur er uppi á milli
Fjarskipta og Tals vegna ógreiddra reikninga sem
Fjarskipti hafa gefið út á
hendur Tali. Forsaga málsins er sú að Tal og
Fjarskipti gerðu með sér
endursölusamning um að Tal keypti tiltekna
fjarskiptaþjónustu af Fjarskiptum í
heildsölu. Á árinu 2011 kom upp ágreiningur
milli félaganna varðandi reikninga
sem Fjarskipti gáfu út á hendur Tali vegna
umframgagnamagns, þ.e. kaupa Tals á
gagnaflutningi umfram tiltekin mörk, og
vegna innsláttar pantana en samkvæmt
samningi fyrirtækjanna hafa Fjarskipti
umsjón með innslætti pantana vegna
viðskiptavina Tals gegn gjaldi.

Á fyrri hluta árs 2012 greiddi Tal hluta af
þeim reikningum sem ágreiningur
ríkir um en eftir stendur ágreiningur um fimm
reikninga vegna ársins 2011. Til
viðbótar við þær fjárhæðir sem um ræðir hafa
Fjarskipti uppi kröfu á hendur Tali
um greiðslu áfallandi dráttarvaxta,
innheimtu- og málskostnaðar. Þann 31. mars
2011 gaf Tal út reikning á hendur
Fjarskiptum sem fyrirtækið kveðst byggja á
kröfu um endurgreiðslu vegna
meintrar ofrukkunar Fjarskipta vegna
fastlínuþjónustu í heildsölu. Stjórnendur
Fjarskipta telja kröfuna tilhæfulausa.

Fjarskipti undirbúa nú málshöfðun á
hendur Tali til greiðslu þeirra fimm krafna
frá árinu 2011 sem ágreiningur er
um og að framan er lýst. Reikna má með að Tal
krefjist sýknu af kröfum
Fjarskipta og hafi jafnframt uppi gagnkröfu á hendur
Fjarskiptum vegna
framangreinds reiknings frá 31. mars 2011. Það er afstaða
Fjarskipta að
samkvæmt fyrirliggjandi samningum Fjarskipta og Tals sé
greiðsluskylda Tals
ótvíræð. Fari ágreiningur Fjarskipta og Tals fyrir dóm er þó
ekki hægt að
ábyrgjast hver lokaniðurstaða málsins verður. Versta mögulega
niðurstaðan fyrir
Fjarskipti væri sú að félagið tapaði öllum kröfum sínum á
hendur Tali auk þess
að vera dæmt til að endurgreiða Tali fyrrnefnda kröfu
þeirra. Verði niðurstaðan
sú gæti slíkt haft í för með sér neikvæð áhrif á
rekstrarhagnað félagsins að
fjárhæð 43,2 m.kr.

Besta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að
félaginu væru dæmdar
fullar greiðslur úr hendi Tals auk þess sem framangreindri
kröfu Tals á hendur
Fjarskiptum yrði vísað frá. Í slíku tilviki væru
heildaráhrifin á rekstrarhagnað
félagsins jákvæð um 109,3 m.kr.

Til viðbótar
við þá fimm reikninga sem að framan greinir, sem eru vegna ársins
2011, hefur
Tal haldið eftir hluta af greiðslum vegna reikninga útgefnum á árinu
2012.
Vanskilin gætu haft neikvæð áhrif á rekstrarhagnað Fjarskipta að fjárhæð
21
m.kr. Útistandandi kröfur vegna ársins 2012 munu fara í
hefðbundið
innheimtuferli af hálfu Fjarskipta en kröfur vegna ársins 2011 munu
fara fyrir
dómstóla líkt og að framan greinir.

Aðilar hafa undirritað
samkomulag þess efnis að Tal hætti alfarið í viðskiptum
við Fjarskipti þann 13.
desember 2012. Tal hefur þó möguleika á framlengingu
þess tímabils til 13.
febrúar 2013 svo fremi að beiðni þess efnis berist
Fjarskiptum fyrir 1.
desember 2012."

Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur
fram.

[HUG#1769065]