English Icelandic
Birt: 2014-02-12 16:07:01 CET
Icelandair Group hf.
Hluthafafundir

CORRECTION: Aðalfundur 11. mars 2014

Eftirfarandi hefur verið leiðrétt:

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 2.150 m.kr. í íslenskum krónum, eða kr. 0,43 á hvern hlut.

 

ICELANDAIR GROUP HF. – AÐALFUNDUR 11. MARS 2014

Haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 16:30

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
  2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
  4. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu
  5. Kosning stjórnar félagsins
  6. Kosning endurskoðanda
  7. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf
  8. Önnur mál löglega fram borin

Tillögur

  1. Ársreikningur (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að ársreikningur fyrir árið 2013 verði samþykktur.

  1. Arður (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 2.150 m.kr. í íslenskum krónum, eða kr. 0,43 á hvern hlut. Arðsréttindadagur verði 14. mars 2014 þannig að hluthafar tilgreindir í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs. Arðleysisdagur, það er sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2013, verði 12. mars 2014, næsta viðskiptadag eftir aðalfund. Útborgunardagur verði 9. apríl 2014.

  1. Þóknun til stjórnarmanna ( liður 3)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að stjórnar- og nefndarlaun verði óbreytt: Stjórnarmenn fái 275.000 krónur á mánuði, formaður fái 550.000 krónur á mánuði, varaformaður fái 412.500 krónur á mánuði, varastjórnarmaður fái 137.500 krónur á mánuði, nefndarmenn í undirnefndum fái 100.000 krónur á mánuði, formaður endurskoðunarnefndar fái 225.000 krónur á mánuði og formaður starfskjaranefndar 125.000 krónur á mánuði.

  1. Starfskjarastefna (liður 4)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi starfskjarastefna, sem er efnislega óbreytt frá síðasta fundi, verði samþykkt.

  1. Endurskoðandi (liður 6)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG hf. verði endurskoðunarfyrirtæki félagsins, en að Alexander Eðvardsson og Auður Ósk Þórisdóttir muni annast endurskoðunina f.h. KPMG.

  1. Heimild til kaupa á eigin bréfum (liður 7)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að félaginu verði heimilt að kaupa á næstu 5 árum allt að 10% af hlutabréfum félagsins, skv. 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupverð bréfanna skal miðað við dagslokagengi daginn áður en kaup eru gerð eða eins og mælt er fyrir um í hlutafélagalögum.