English Icelandic
Birt: 2014-02-06 09:58:44 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur janúar 2014

Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 125 þúsund og fjölgaði þeim um 15% miðað við janúar á síðasta ári.  Framboð í millilandafluginu var aukið um 15%. Sætanýtingin var 70,5% og jókst um 1,6 prósentustig í mánuðinum á milli ára.

Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru 20 þúsund í janúar og fækkaði um 5%.  Framboð í janúar var 7% lægra en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 68,2% samanborið við 66,1% í janúar 2012. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 8% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 7% á milli ára. Seldar gistinætur hjá Flugleiðahótelunum jukust um 10% á milli ára. Herbergjanýting var 51,4%, eða 4,8 prósentustigum hærri en í janúar 2013.

 

MILLILANDAFLUG JAN 14 JAN 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 124.745 108.920 15%
Sætanýting 70,5% 68,9% 1,6 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 519,2 451.995 15%
       
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JAN 14 JAN 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 20.353 21.460 -5%
Sætanýting 68,2% 66,1% 2,1 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 9,4 10.069 -7%
       
LEIGUFLUG JAN 14 JAN 13 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 75,0% 25,0 ppt
Seldir blokktímar 2.487 2.704 -8%
       
FRAKTFLUTNINGAR JAN 14 JAN 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 14.207 13.439 6%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.981 7.451 7%
       
HÓTEL JAN 14 JAN 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.940 22.940 0%
Seldar gistinætur 11.788 10.694 10%
Herbergjanýting 51,4% 46,6% 4,8 ppt

  

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010