Icelandic
Birt: 2014-01-30 15:06:48 CET
Félagsbústaðir hf.
Reikningsskil

Endurunnir ársreikningar Félagsbústaða samkvæmt IFRS reikningsskilastaðli

Félagsbústaðir hafa að kröfu ársreikningaskrár tekið upp reikningsskil samkvæmt IFRS reikningskilastaðli og verður ársreikningur fyrir árið 2013 unninn samkvæmt IFRS.

Ársreikningar fyrir árin 2012 og 2011 hafa verið endurunnir samkvæmt IFRS staðli.  Engar breytingar urðu á framsetningu rekstrarreiknings og efnhagsreiknings af þessum sökum, en framsetning sjóðstreymis er breytt þó að allar undirliggjandi stærðir séu óbreyttar.  Ennfremur eru skýringar með þessum ársreikningum ítarlegri en í áður útgefnum reikningum.

Stjórn félagsins hefur í dag undirritað endurgerða ársreikninga fyrir árin 2011 og 2012 sem fylgja hér með í viðhengi.


Felagsbustair arsr 2011 us kr_IFRS.PDF
Felagsbustair arsr 2012 us kr_IFRS.PDF