Icelandic
Birt: 2014-01-10 12:24:11 CET
Hagar hf.
Reikningsskil

Hagar hf. - birting árshlutauppgjörs Q3 / mars - nóvember 2013

Árshlutareikningur Haga fyrir þriðja ársfjórðung 2013/14 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 10. janúar 2014.  Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2013 til 30. nóvember 2013. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður.

Helstu upplýsingar:

  • Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 2.773 millj. kr.
  • Vörusala tímabilsins nam 55.790 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,2%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.236 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 26.632 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 2.514 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 10.918 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 41,0% í lok tímabilsins.

Vörusala tímabilsins nam 55.790 milljónum króna, samanborið við 52.314 milljónir króna árið áður. Söluaukning félagsins er 6,6%. Hækkun 9 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 3,7%. Framlegð félagsins var 13.527 milljónir króna, samanborið við 12.585 milljónir króna árið áður eða 24,2% samanborið við 24,1%. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 2,5% milli ára en kostnaðarhlutfallið lækkar úr 17,5% í 16,8%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 4.236 milljónum króna, samanborið við 3.546 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 7,6%, samanborið við 6,8% árið áður.

Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 3.475 milljónum króna, samanborið við 2.612 milljónir króna árið áður.  Hagnaður eftir skatta nam 2.773 milljónum króna á tímabilinu eða tæplega 5,0% af veltu. Hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 2.063 milljónir.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.632 milljónum króna. Fastafjármunir voru 12.733 milljónir króna og veltufjármunir 13.899 milljónir króna. Þar af eru birgðir 6.432 milljónir króna. Hækkun birgða frá lokum febrúar skýrist að mestu með birgðasöfnun vegna jólavertíðar. Birgðir á sama tíma í fyrra námu 5.963 milljónum króna sem nemur 7,9% hækkun milli ára.

Eigið fé félagsins var 10.918 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 41,0%.  Heildarskuldir samstæðunnar voru 15.714 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 7.156 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 4.474 milljónir króna en 1.500 milljónir króna voru greiddar inn á langtímalán félagsins umfram lánssamning á tímabilinu, þar af 1.000 milljónir á þriðja ársfjórðungi.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 2.437 milljónum króna, samanborið við 2.750 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 324 milljónir króna og fjármögnunar­hreyfingar 2.546 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 2.514 milljónir króna, samanborið við 2.590 milljónir króna árið áður.

  

Framtíðarhorfur:

Rekstur á þriðja ársfjórðungi rekstrarársins 2013/14 var umfram áætlanir félagsins og betri en á sama tímabili í fyrra. Horfur í rekstri eru góðar líkt og verið hefur og mun áframhaldandi vinna eiga sér stað við að bæta kostnaðarhlutföll, aðfangakeðjuna sem og fleiri þætti er varða innri málefni félagsins.

Matvöruverslanir Haga munu á næstu dögum lækka verð á nokkur hundruð vöruliðum um að meðaltali 2-3%. Um er að ræða vörur sem verslanirnar flytja beint inn frá erlendum birgjum og er þar nýtt það svigrúm sem styrking krónunnar gefur til verðlækkunar.

Hluti starfsemi vöruhúss Aðfanga mun flytja sig um set á vormánuðum þar sem á síðasta ári voru fest kaup á fasteign við Skútuvog 5 í Reykjavík. Um er að ræða kæli- og frystivörugeymslu vöruhússins en hún var áður í leiguhúsnæði við Brúarvog í Reykjavík. Auk þess mun hefjast vinna við að undirbúa byggingu nýs vöruhúss Banana en félagið hefur fest kaup á lóð við Korngarða 1 í Reykjavík. Samhliða þessu mun félagið halda áfram að skoða nýja fjárfestingakosti í kjarnastarfsemi sinni, nýjar staðsetningar, vinna í að fækka óhagkvæmum fermetrum auk þess að stefna að áframhaldandi niðurgreiðslu skulda.

  

Fjárhagsdagatal 2013/14:

4. ársfjórðungur (1. mars – 28. feb): 15. maí 2014

Aðalfundur 5. júní 2014

 

   

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.

 


Frettatilkynning Hagar arshlutareikningur 301113.pdf
Hagar arshlutareikningur 30 11 2013 m nofnum.pdf