Icelandic
Birt: 2013-12-20 18:00:45 CET
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

EIK FASTEIGNAFÉLAG HF. KAUPIR ALLT HLUTAFÉ Í LANDFESTUM EHF.

Tilkynning um undirritun kaupsamnings.

Undirritaður hefur verið kaupsamningur milli Eikar fasteignafélags hf. og Arion banka hf. um kaup Eikar á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Landfestum ehf. Eik mun greiða fyrir kaupin með nýju hlutafé og verður Arion banki þar með stærsti hluthafi Eikar. Hlutafjárhækkun vegna kaupanna verður lögð fyrir hluthafafund Eikar í janúar næstkomandi en samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Eikar, niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Á sama tíma var undirritaður viðauki við kaupsamning Eikar á ákveðnum eignum SMI ehf. frá 23. ágúst síðastliðnum.

Um Landfestar ehf.

Landfestar ehf. er fasteignafélag sem sérhæfir sig í leigu á skrifstofu- og atvinnuhúsnæði. Eignasafn Landfesta samanstendur af 35 eignum alls um 98 þúsund fermetrum. Stærstur hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Bókfært virði fjárfestingareigna nam 22 milljörðum króna þann 30. júní 2013.

Um sameinað félag

Eftir kaupin verður Eik eitt af stærstu fasteignafélögum landsins með um eitt hundrað eignir sem telja um 272 þúsund fermetra og verður heildarfjöldi leigutaka yfir fjögur hundruð. Efnahagur sameinaðs félags verður um 60 milljarðar króna þar sem helstu eignirnar verða meðal annars Borgartún 21 og 26, Smáratorg 1 og 3, Glerártorg, Skútuvogur 16, Austurstræti 5, 6, 7 og 17 og Þingholtsstræti 3-5. Meirihluti tekna sameinaðs félags verða frá eignum miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Enginn einn leigutaki sameinaðs félags mun fara yfir 10% af heildarvirðisútleigu félagsins.

Framkvæmd kaupanna

Eik fasteignafélag hf. mun greiða fyrir allt hlutafé Landfesta ehf. með útgáfu nýrra hluta sem afhentir verða Arion banka hf.  Með kaupum á Landfestum mun eigið fé Eikar aukast um tæplega 7 milljarða króna.

Eignir SMI verða keyptar með kaupum á félagi. Eik mun gangast í ábyrgð fyrir lánum þess félags rétt eins og fasteignirnar væru keyptar beint inn í Eik. Eiginfjárhlutfall Eikar með Landfestum og eignum SMI mun nema um 25% eftir að kaupin hafa gengið í garð.

Í kjölfar kaupana er gert ráð fyrir að félagið muni auka eigið fé um þrjá milljarða króna með sölu nýs hlutafjár og verður áætlað eiginfjárhlutfall sameinaðs félags um 30% eftir hlutafjáraukninguna. Fyrirhugað er að endurfjármagna Landfestar á næstu mánuðum með útgáfu skuldabréfa.

Annað

Kaup Eikar á Landfestum er hluti af áformum félagsins um að byggja upp öflugt fasteignafélag. Stefnt er að skráningu hlutafjár Eikar í Kauphöll Íslands eftir að viðeigandi yfirvöld hafa fjallað um kaupin.

 

Frekari upplýsingar veita fyrir hönd Eikar fasteignafélags Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarformaður, í síma 864-3378 eða með tölvupósti á stefan@lmb.is, og Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, í síma 861-3027 eða með tölvupósti á gardar@eik.is.  Frekari upplýsingar veitir fyrir hönd Arion banka Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður Samskiptasviðs Arion banka í síma 856-7108 með tölvupósti á haraldur.eidsson@arionbanki.is


Garðar Hannes Friðjónsson,
Forstjóri Eikar fasteignafélags hf.