Hlutabréf N1 hf. tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland
NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur samþykkt umsókn N1 hf. (kt. 540206-2010) (N1) um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Þann 3. desember sl. samþykkti Kauphöllin umsókn N1 að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár. Þeim skilyrðum hefur nú verið fullnægt. Fyrsti viðskiptadagur með hluti N1 verður 19. desember nk.
Auðkenni N1
Fjöldi hluta 1.000.000.000
ISIN kóði IS0000020584
Viðskiptalota 1 hlutur
Stærðarflokkun Small Cap
Markaður OMX ICE Equities / 23
Verðskrefatafla XICE Equities, ISK / 72
MIC XICE
Upplýsingar um Orderbook ID og ICB atvinnugreinaflokkun verða birtar síðar.
|