English Icelandic
Birt: 2013-12-05 18:09:50 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur nóvember 2013

Í nóvember flutti félagið um 144 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10% fleiri en í nóvember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og sætanýting var 73,8% samanborið við 75,8% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 20,9%.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 21 þúsund í nóvember og fækkaði um 17% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 17% samanborið við nóvember 2012. Sætanýting nam 71,4% og lækkaði um 1,0 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 2% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 8% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 65,5% samanborið við 61,8% í nóvember í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 143.504 10% 2.116.869 11%
Sætanýting 73,8% -2,0 %-stig 79,5% -1,6 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 578,4 15% 7.775,1 16%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 21.423 -17% 287.557 -11%
Sætanýting 71,4% -1,0 %-stig 71,5% 2,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 9,2 -17% 145,0 -14%
         
LEIGUFLUG NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 90,0% 3,6 %-stig 91,0% -1,5 %-stig
Seldir blokktímar 2.096 -2% 25.871 -10%
         
FRAKTFLUTNINGAR NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 15.199 6% 187.621 9%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.057 8% 86.663 6%
         
HÓTEL NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.200 0% 291.663 8%
Seldar gistinætur 14.549 6% 211.839 6%
Herbergjanýting 65,5% 3,8 %-stig 72,6% -0,9 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - November.pdf