Icelandic
Birt: 2013-11-14 14:10:12 CET
Félagsbústaðir hf.
Fyrirtækjafréttir

Varðar Reikningsskil Félagsbústaða vegna áranna 2011 og 2012

Við eftirlit með reikningsskilum Félagsbústaða hf. fyrir reikningsárið 2011 kom í ljós að ársreikningur félagsins var ekki gerður og settur fram í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Hinn 29 maí 2012 ákvarðaði ársreikningaskrá ríkisskattstjóra að félaginu væri skylt að beita IFRS við gerð og framsetningu ársreikninga sinna í samræmi við ákvæði 90.gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga. Hinn 21. júlí 2013 staðfesti atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ákvörðun ársreikningaskrár en félagið hafði kært ákvörðun ársreikningaskrár til ráðuneytisins.

Stefnt er að endurgerð reikningsskila félagsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla og birtingu þeirra vegna reikningsáranna 2011 og 2012 verði lokið fyrir 31. janúar 2014