Icelandic
Birt: 2013-11-08 10:00:00 CET
FAST-1 slhf.
Fyrirtækjafréttir
Tilkynning til Kauphallar Íslands frá FAST-1 slhf.
FAST-1 slhf.  tilkynnir að  uppgötvast hafi  þann 6. nóvember  2013 að ekki
hafi
verið  staðið  með  fullnægjandi  hætti  að  veðsetningu  til  tryggingar
á þeim
fasteignum  sem  getið  er  til  um  í  skilmálum  Útboðslýsingar  vegna
 útgáfu
skuldabréfaflokks  með auðkenni  FAST-1 12 1. Nánar tiltekið  hafði
annars vegar
orðið dráttur á þinglýsingu tryggingabréfa og hins vegar hafði
láðst að þinglýsa
aðilaskiptum að áhvílandi tryggingarbréfum.

Útgefandi  hefur
nú þegar brugðist við  og gefið út fullnægjandi tryggingarskjöl
sem  móttekin 
hafa  verið  af  sýslumannsembættinu  til  að  fullnægja umræddum
skilyrðum  um
 sérstaka  skuldbindingu  samkvæmt  skilmálum  í  Útboðslýsingu
en
sýslumannsembættið tekur sér nokkra daga til að skrá inn umrædd
veðréttindi.

Þá mun útgefandi tilkynna opinberlega þegar þinglýsingu
framangreindra trygginga
er lokið og skilmálum Útboðslýsingar hefur verið
fullnægt.


[HUG#1741728]

 


Tilkynning til Kauphallar Islands fra FAST-1 slhf..pdf