English Icelandic
Birt: 2013-11-06 18:56:53 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur október 2013

Í október flutti félagið um 185 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 8% fleiri en í október á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 78,1% samanborið við 80,6% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 17,8%.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 26 þúsund í október og fækkaði um 8% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 3% samanborið við október 2012. Sætanýting nam 71,5% og lækkaði um 5,2 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 2% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 61,9% samanborið við 67,6% í október í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 184.854 8% 1.973.491 12%
Sætanýting 78,1% -2,5 %-stig 79,9% -1,6 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 696,6 12% 7.196,7 16%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 26.535 -8% 266.309 -10%
Sætanýting 71,5% -5,2 %-stig 71,6% 2,4 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 11,9 -3% 135,8 -13%
         
LEIGUFLUG OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 90,9% -9,1 %-stig 91,1% -2,0 %-stig
Seldir blokktímar 2.283 -11% 23.774 -10%
         
FRAKTFLUTNINGAR OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 17.753 10% 170.035 10%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.468 2% 78.603 6%
         
HÓTEL OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.940 0% 269.463 8%
Seldar gistinætur 14.206 -8% 197.290 6%
Herbergjanýting 61,9% -5,7 %-stig 73,2% -1,4 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - October.pdf