Icelandic
Birt: 2013-10-23 15:30:00 CEST
Embla Medical hf
Reikningsskil
Össur - Þriðji ársfjórðungur 2013
Þriðji ársfjórðungur 2013

  * Hagnaður jókst um 28% milli ára og nam 13
milljónum Bandaríkjadala og 12% af
    sölu, samanborið við 10 milljónir dala
og 10% af sölu á þriðja ársfjórðungi
    2012.
  * Sala nam 105 milljónum
Bandaríkjadala, samanborið við 99 milljónir dala á
    þriðja ársfjórðungi
2012. Söluvöxtur var 5%, þar af 3% innri vöxtur,
    hvortveggja mælt í
staðbundinni mynt.
  * Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 6%, þar af 1%
innri vöxtur, hvort
    tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  * Sala á stoðtækjum
jókst um 5%, þar af 4% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í
    staðbundinni
mynt.
  * Sala í EMEA var góð og sýndu öll landsvæði góðan vöxt.
Bandaríkjamarkaður
    sýnir jákvæð merki, en áfram er gert ráð fyrir óvissu á
þessum markaði.
  * Framlegð nam 65 milljónum Bandaríkjadala og 62% af sölu,
samanborið við 62
    milljónir Bandaríkjadala og 63% af sölu á þriðja
ársfjórðungi 2012.
  * EBITDA nam 22 milljónum Bandaríkjadala og 21% af sölu,
samanborið við 18
    milljónir dala og 19% af sölu á þriðja ársfjórðungi
2012.
  * Rekstrarkostnaður sem hlutfall af sölu var 45% samanborið við 47% á
sama
    fjórðungi 2012. aðhaldsaðgerðir sem farið var í á öðrum ársfjórðungi
skila
    nú þegar tilætluðum árangri.
  * Handbært fé frá rekstri var 23% af
sölu, samanborið við 17% á þriðja
    ársfjórðungi í fyrra.
  * Fyrsta október
var gengið frá kaupunum á TeamOlmed, sem voru tilkynnt 21.
    maí 2013.
TeamOlmed kemur inn í samstæðu Össurar 1. október 2013.
  * Á fjórðungnum var
gengið frá tveimur minniháttar fyrirtækjakaupum.


Áætlun 2013

  * Stjórnendur
staðfesta áður birta áætlun fyrir árið um að innri söluvöxtur
    verði á
bilinu 2-4%, mælt í staðbundinni mynt, og leiðrétt EBITDA á bilinu
    18-19%
sem hlutfall af veltu.


Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Niðurstöður  fjórðungsins
eru mjög góðar og sýna hæsta rekstrarhagnað Össurar á
einum  fjórðungi  og 
mjög  sterkt  sjóðstreymi.  Það  er  ánægjulegt  að sjá að
aðhaldsaðgerðir  sem
 við  hófum  á  öðrum  ársfjórðungi  eru  nú þegar að skila
tilætluðum 
árangri. Góður  árangur í  EMEA heldur  áfram og á Bandaríkjamarkaði
sjáum  við
nú þegar merki um jákvæða  þróun. Þrátt fyrir jákvæð merki teljum við
raunhæft 
að  gera  ráð  fyrir  áframhaldandi  óvissu á  Bandaríkjamarkaði
næstu
fjórðunga.  Á fjórðungnum héldum við áfram að stykja stöðu okkar og til
viðbótar
við kaupin á TeamOlmed gengum við frá kaupum á tveimur litlum
fyrirtækjum."


Símafundur fimmtudaginn 24. október kl. 10:00

Á  morgun, 
fimmtudaginn  24. október,  verður  haldinn símafundur þar sem farið
verður 
yfir niðurstöður  fyrir þriðja  ársfjórðung. Fundurinn  hefst kl.
10:00
GMT/12:00   CET.    Innhringinúmer:  Evrópa:  +44 (0)  203 364 5374 eða 
+46 (0)
8 505 564 74; Bandaríkin: + 1 855 753 2230; Ísland: 800 8660


Athugið
að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins. Tilkynningu í
fullri
lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors

[HUG#1737642]

 


Ossur financial statement 30.09.2013.pdf
Ossur Press Release Q3 2013 English.pdf
Q3 2013 Investor Presentation.pdf