Icelandic
Birt: 2013-09-23 11:14:34 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf. og Landfestar ehf. hefja samrunaviðræður

Stjórn Eikar fasteignafélags hf. og Arion banki hf., eigandi Landfesta ehf., hafa ákveðið að hefja viðræður um hugsanlegan samruna Eikar fasteignafélags hf. og Landfesta hf.  Markmið viðræðnanna er að leggja mat á eignarhlutföll í sameinuðu félagi og væntan ábata hluthafa félaganna tengdan samlegðartækifærum félaganna og hugsanlegri skráningu hlutafjár hins sameinaða félags í kauphöll. Í viðræðum aðila er gert ráð fyrir því að Eik fasteignafélag hf. ljúki þeim kaupum fasteigna af SMI ehf., sem félagið hefur skuldbundið sig til. Ef af samruna félaganna verður, verður hið sameinaða félag eitt sterkasta fasteignafélag landsins og augljós valkostur viðskiptamanna og fjárfesta.

Gert er ráð fyrir að niðurstaða viðræðna aðila liggi fyrir innan fjögurra vikna.

Frekari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson
Forstjóri
Sími 861-3027
gardar@eik.is