English Icelandic
Birt: 2013-09-06 00:48:18 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur ágúst 2013

Í ágúst flutti félagið yfir 300 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 11% fleiri en í ágúst á síðasta ári.  Framboðsaukning á milli ára nam 11% og sætanýting var 85,6% samanborið við 84,9% á sama tíma í fyrra.  Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 16,4% og voru þeir 52% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í ágúst.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæplega 33 þúsund í ágúst og fækkaði um 12% á milli ára.  Framboð félagsins í ágúst var dregið saman um 13% samanborið við ágúst 2012. Sætanýting nam 73,5% og jókst um 3,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 10% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 12% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinátta á hótelum félagsins jókst um 2% milli ára. Herbergjanýting var 88,2% samanborið við 88,1% í ágúst í fyrra.

   

MILLILANDAFLUG ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 300.089 11% 1.573.395 12%
Sætanýting 85,6% 0,7 %-stig 80,5% -1,2 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.029,2 11% 5.676,7 17%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 32.935 -12% 214.804 -10%
Sætanýting 73,5% 3,5 %-stig 71,7% 3,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 20,7 -13% 110,8 -14%
         
LEIGUFLUG ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 90,9% -1,1 %-stig 90,5% -0,9 %-stig
Seldir blokktímar 2.512 -10% 19.102 -11%
         
FRAKTFLUTNINGAR ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 21.102 12% 133.385 10%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.118 12% 61.462 5%
         
HÓTEL ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 34.535 2% 223.567 10%
Seldar gistinætur 30.459 2% 167.046 9%
Herbergjanýting 88,2% 0,1 %-stig 74,7% -0,5 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - August 2013.pdf