Icelandic
Birt: 2013-08-27 11:05:01 CEST
Fagfjárfestasjóðurinn REG 1
Reikningsskil

Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins REG 1 vegna fyrri árshelmings 2013

Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2013, efnahagi hans 30. júní 2013 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2013, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með morgundeginum á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um árshlutareikning REG 1 veitir Heiðar Ingi Ólafsson sjóðstjóri, í síma 444 7421.

 


REG 1 Arshlutareikningur 30 06 2013.pdf