Icelandic
Birt: 2013-08-26 20:12:16 CEST
Reginn hf.
Reikningsskil

Árshlutareikningur Regins fyrstu sex mánuði ársins 2013

Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar til 30. júní 2013 var samþykktur af stjórn þann 26. ágúst.

·         Rekstrartekjur námu 1.907 milljón króna.

·         Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 1.159 milljónir króna.

·         Hagnaður eftir  tekjuskatt nam 534 milljónum króna.

·         Vaxtaberandi skuldir voru 22.869  milljónir króna í lok tímabilsins samanborið við 19.297 milljónir kr. við árslok 2012.

·         Handbært fé frá rekstri nam 605 milljónum króna.

·         Fjárfestingareignir voru metnar á 35.749 milljónir króna

·         Eiginfjárhlutfall er 32%.

·         Hagnaður á hlut var 0,41 samanborðið við 0,76 árið áður.

 

Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.) Fjöldi hluthafa í byrjun júlí er 852.

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á fyrri helming ársins 2013 var góð og í samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 1.907 milljón króna og þar af námu leigutekjur 1.657 milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tímabili fyrra árs eru um 20 %. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir nam 1.159 milljónum króna eða sem nemur 70% af leigutekjum sem er í samræmi við markmið félagsins. Hagnaður hefur aukist um 26% samanborið við sama tímabil 2012.

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok fyrri árshelmings 2013 átti Reginn 39 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 185 þúsund fermetrar og þar af voru 165 þúsund útleigjanlegir fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins var 98% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi.

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers uppgjörtímabils í tengslum við gerð árshluta og ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Matsbreyting á tímabilinu er 435 milljónir króna.

Stækkun félagsins og horfur

Í febrúar 2013 var gerð breyting á fjárfestingastefnu félagsins, lögð var frekari áhersla á sterkt eigið fé,  skýra arðsemiskröfu og öryggi í fjárfestingum.  Í markmiðum  félagsins er gert ráð fyrir að eignasafn félagsins allt að tvöfaldist á næstu fimm árum.

Frá hausti 2012 hefur verið unnið að stækkun og styrkingu á eignasafni félagsins. Á því tímabili hafa verið gerðir samningar um kaup á fimm minni fasteignafélögum og tveimur fasteignum, hluti þessa kaupa er frágenginn en hluti í vinnslu sbr. fyrri tilkynningar til Kauphallar. Þessi kaup sem öll eru í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins, styrkja tekjugrunn og bæta arðsemi og afkomu.  Ekki hefur þurft að auka eigið fé félagsins við þessi kaup en áætlað er að eiginfjárhlutfall verði um 32% þegar þessi kaup eru að fullu um garð gengin. Að loknum þessum kaupum verður fjöldi fasteigna í eigu félagsins 44 og heildarstærð fasteigna um 189 þús. m2.

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar eru um annað en að áætlanir félagsins standist.

Kynning

Samhliða birtingu á þessu uppgjöri boðar Reginn til opins kynningarfundar þriðjudaginn 27. ágúst kl. 8:30 í verslunarmiðstöðinni Smáralind, 1. hæð. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri félagsins mun kynna afkomu annars ársfjórðungs 2013, Jóhann Sigurjónsson, fjármálastjóri félagsins kynnir virðismat og Sturla Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar kynnir stöðu og framtíð Smáralindar. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/96764f0fedcc40f896830a0f71c2c31c1d

Um félagið

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði. Félagið er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.). Félagið tók til starfa vorið 2009.

 

Hægt er að nálgast árshlutareikning annars ársfjórðungs og kynningagögn á www.reginn.is/fjarfestar/

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262


Reginn hf. - Arshlutareikningur 30.6.2013 - undirritaur.pdf
Reginn hf. - Frettatilkynning Q2-2013.pdf
Reginn hf. - Kynning a uppgjori Q2-2013.pdf