Icelandic
Birt: 2013-08-23 14:50:26 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Eik fasteignafélag hf. kaupir hluta fasteigna SMI ehf.

Tilkynning um undirritun kaupsamnings

Í dag, 23. ágúst 2013, var undirritaður kaupsamningur milli Eikar fasteignafélags hf. og SMI ehf. um kaup á eignum. Kaupsamningurinn er með fyrirvara um fjármögnun, samþykki hlutahafundar Eikar fasteignafélags hf., samþykki stjórnar beggja félaga, sem og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fasteignir sem um ræðir í kaupsamningi eru m.a. Smáratorg 1, Smáratorg 3 og lóð að Smáratorgi 5 í Kópavogi auk Gleráreyra 1 og fasteigna við Dalsbraut 1 á Akureyri.

Heildarstærð fasteigna er rúmlega 62 þúsund m2. Leigutakar eru alls um 75 talsins og meðal helstu leigutaka eru Rúmfatalagerinn, Deloitte, Alvogen,  Bónus, Nettó o.fl.

Eignasafn Eikar fasteignafélags hf. mun stækka um rúmlega 70% við kaupin. Eik fasteignafélag hf. sér mikil tækifæri í kaupum á eignum SMI ehf. m.a. með auknum samlegðaráhrifum og aukinni áhættudreifingu bæði hvað varðar eignasafn og leigutaka. Fasteignir sem um ræðir falla einnig vel inn í eignasafn Eikar.

Kaupverð er trúnaðarmál. Eik fasteignafélag hf. hyggst auka hlutafé til að fjármagna hluta kaupverðs, auk þess sem kaupin verða fjármögnuð með banka- og skuldabréfafjármögnun. Kaupin eru liður í áformum félagsins um stækkun og að endingu skráningu hlutafjár í Kauphöll.

Frekari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar fasteignafélags hf.
Sími: 861-3027
Netfang: gardar@eik.is