Icelandic
Birt: 2013-08-20 18:31:32 CEST
Vátryggingafélag Íslands hf.
Reikningsskil

Vátryggingafélag Íslands hf. - árshlutauppgjör

Afkoma á fyrri árshelmingi 2013

Árshlutareikningur félagsins fyrir fyrri helming ársins 2013 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins  á stjórnarfundi þann 20. ágúst 2013.  Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu niðurstöður:

·   Hagnaður félagsins eftir skatta á fyrri helmingi ársins  var 1.094 m.kr samanborið við 993 m.kr. hagnað á sama tímabili 2012.

·   Hagnaður félagsins fyrir skatta á fyrri árshelmingi nam 1.285 samanborið við 1.176 m.kr. á sama tímabili 2012.

·   Iðgjöld tímabilsins námu 7.971 m.kr. samanborið við 7.916 m.kr á sama tímabili árið 2012.

·   Framlegð af vátryggingarekstri nam 221 m.kr. á fyrri árshelmingi samanborið við 234 m.kr. á sama tímabili 2012. 

·   Samsett hlutfall var 98,2% á fyrri árshelmingi samanborið við 97,8% fyrir sama tímabil 2012.

·   Fjármunatekjur námu 1.374 m.kr. samanborið við 1.220 m.kr. á sama tímabili 2012.

·   Heildareignir í lok júní námu 47.763 m.kr. samanborið við 43.452 í árslok 2012.

·   Fjárfestingaeignir félagsins námu 36.513 m.kr. samanborið við 34.706 m.kr. í árslok 2012.

·   Eigið fé félagsins nam 15.565 m.kr í lok júní samanborið við 14.470 m.kr í árslok 2012.

·   Arðsemi eigin fjár á ársgrunni var 14,6% samanborið við 16,4% á sama tímabili árið 2012.

·   Eiginfjárhlutfall 32,6%

·   Gjaldþolshlutfall móðurfélagsins var 5,0 í lok júní 2013. 

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri

„Rekstur félagsins á fyrri hluta ársins 2013 gekk vel og nam hagnaður tímabilsins 1.094 m.kr., samanborið við 993 m.kr. á sama tímabili fyrra árs.  Samsett hlutfall var 98,2% samanborið við 97,8% á sama tíma í fyrra og 98,5% allt árið 2012.  Afkoma af vátryggingarekstri er sveiflukennd milli ársfjórðunga og var samsett hlutfall á öðrum ársfjórðungi 96,1% samanborið við 100,4% í þeim fyrsta.  Afkoma af fjárfestingastarfsemi á tímabilinu var ágæt og námu fjármunatekjur félagsins 1.374 m.kr. samanborið við 1.220 m.kr. á sama tímabili í fyrra.  Afkoma fjárfestingastarfseminnar var sveiflukennd á tímabilinu, en talsverðar hræringar urðu á ávöxtunarkröfu verðtryggðra skuldabréfa sem höfðu neikvæð áhrif á ávöxtun þessara eigna á öðrum ársfjórðungi.  Styrking krónunnar á tímabilinu varð til þess að nokkurt gengistap var af erlendum eignum.  Ágæt hækkun var á hlutabréfaeignum félagsins á rekstrartímabilinu. 

Eigin iðgjöld samstæðunnar námu alls 7.971 m.kr. á tímabilinu en voru 7.916 m.kr. á sama tímabili í fyrra.  Eigin tjón voru 5.785 m.kr. og lækkuðu um 48 m.kr frá árinu áður.  Rekstrarkostnaður var 1.978 m.kr. en var 1.840 m.kr. á sama tíma í fyrra og skýrist stór hluti hækkunar af tilkomu Lífís í samstæðu VÍS og af einskiptiskostnaði vegna skráningar félagsins.

Gjaldþol móðurfélagsins var 15,3 milljarðar króna og gjaldþolshlutfall 5,0 sem er vel umfram markmið félagsins sem er að vera með gjaldþolshlutfallið yfir 4,0. Í lok tímabilsins nam vátryggingaskuld samstæðunnar 29,2 milljörðum króna, en eignir til jöfnunar vátryggingaskuldar voru 41,9 milljarðar króna, eða 12,6 milljörðum króna hærri sem endurspeglar fjárhagslegan styrk VÍS“.

Vakin er athygli á að Lífís varð hluti af samstæðu félagsins þann 1. apríl 2012 svo tölur eru ekki að fullu samanburðarhæfar á milli fyrri hluta áranna 2012 og 2013.

Horfur

Stefna félagsins er að leggja áfram áherslu á áhættumat og verðlagningu vátryggingaráhættu ásamt öflugu forvarnarstarfi til að fækka tjónum.  Unnið er að því að einfalda og auka skilvirkni  í starfsemi félagsins.  Jafnframt er áframhaldandi áhersla á að ná traustri langtímaávöxtun á fjárfestingar í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins.

Um VÍS

VÍS er leiðandi fyrirtæki á sviði vátrygginga á Íslandi. VÍS nýtur sterkrar stöðu á íslenskum vátryggingamarkaði með liðlega þriðjungs markaðshlutdeild. Félagið býður upp á víðtæka vátryggingaþjónustu til viðskiptavina sinna þar sem rík áhersla er lögð á viðeigandi ráðgjöf um vátryggingavernd, gæði í þjónustu, skilvirkni og sveigjanleika.

Meginstarfsemi VÍS er á sviði skaðatrygginga og líftrygginga og starfrækir félagið 40 þjónustuskrifstofu víðsvegar um land.  VÍS leggur áherslu á að starfsmenn og umboðsmenn félagsins vinni eftir grunngildum félagsins sem eru umhyggja, fagmennska og árangur.

Hlutverk VÍS

VÍS er traust, leiðandi og framsækið þjónustufyrirtæki sem veitir viðskiptavinum viðeigandi vátryggingavernd og stuðlar að öryggi í samfélaginu með öflugum forvörnum.

Kynningarfundur:

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, 5. hæð, þann 21. ágúst n.k. kl. 8:30. Þar kynnir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum.

Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu VÍS: www.vis.is

Fjárhagsdagatal

Viðburður                                             Dagsetning:

3. ársfjórðungur 2013          19. nóvember 2013

Ársuppgjör 2013                        25. febrúar 2014

Aðalfundur 2014                           13. mars 2014

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.


Frettatilkynning um afkomu VIS H1 2013.pdf
Samstuarshlutareikningur 30.6.2013.pdf