Icelandic
Birt: 2013-07-08 11:24:08 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Hlutafjáraukning Eikar fasteignafélags hf. líkur

Allt sem í boði var selt til forgangsréttarhafa

Föstudaginn 5. júlí lauk áskriftatíma forgangsréttarhafa í hlutafjárútboði Eikar fasteignafélags h.f.  Alls voru nýir hlutir í boði fyrir 750 milljónir króna að markaðsvirði.  Hluthafar 99,4% hluta í félaginu skráðu sig fyrir nýjum hlutum í hlutfalli miðað við rétt sinn.  Forgangsréttarhöfum var auk þess gefinn kostur á að skrá sig fyrir hlutum umfram forgangsrétt sinn.  Veruleg umframeftirspurn var eftir hlutum í félaginu.  Með hlutafjáraukningunni er félagið vel í stakk búið að halda áfram til að nýta sér þau tækifæri sem fást á markaði.

Frekari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar fasteignafélags hf.
Sími: 861-3027
Netfang: gardar@eik.is