English Icelandic
Birt: 2013-07-05 17:35:00 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur júní 2013

Í júní flutti félagið um 269 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 82,2% samanborið við 82,6% á sama tíma í fyrra.  Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15% og voru þeir 51% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í júní.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 28 þúsund í júní og fækkaði um 15% á milli ára.  Framboð félagsins í júní var dregið saman um 20% samanborið við júní 2012. Sætanýting nam 71,1% og jókst um 2,0 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 22% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 10% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 73,6% samanborið við 75,3% í júní í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG JÚN 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 268.617 10% 967.172 14%
Sætanýting 82,2% -0,5 %-stig 77,5% -2,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 963.771 12% 3.614.305 20%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JÚN 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 28.216 -15% 149.585 -10%
Sætanýting 71,1% 2,0 %-stig 70,6% 2,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000) 14.932 -20% 69.889 -14%
         
LEIGUFLUG JÚN 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 0,0 %-stig 89,0% -1,7 %-stig
Seldir blokktímar 2.157 -22% 14.166 -11%
         
FRAKTFLUTNINGAR JÚN 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 19.897 10% 91.122 9%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.860 10% 46.926 4%
         
HÓTEL JÚN 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 35.514 2% 147.578 14%
Seldar gistinætur 26.150 0% 99.664 13%
Herbergjanýting 73,6% -1,7 %-stig 67,5% -0,2 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - June.pdf