Icelandic
Birt: 2013-06-21 12:21:48 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Skýrsla stjórnar vegna hlutafjárútboðs hjá Eik fasteignafélagi hf.

Í tengslum við hlutafjárútboð Eikar fasteignafélags birtir stjórn félagsins skýrslu, sbr. 33. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög.  Í skýrslu stjórnar kemur eftirfarandi fram:

„Með vísan til ársreiknings 2012 og óendurskoðaðs milliuppgjörs fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins, lýsir stjórn því yfir að engar verulegar breytingar hafi orðið á efnahags félagsins, utan að félagið hefur fest kaup á fasteign fyrir kr. 525 m.kr.“

Stefnt er að sölu nýrra hluta fyrir 750 milljónir króna að markaðsvirði.  Umsjónaraðili útboðsins er fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf.

Frekari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson,

forstjóri Eikar fasteignafélags hf.

S. 861-3027