Icelandic
Birt: 2013-06-06 00:19:19 CEST
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs hlutabréfa í Regin hf.

Hlutafjárútboði í Regin hf. lauk klukkan 16:00 þann 5. júní 2013. Í útboðinu bauð Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf. til sölu 325.000.000 hluti í Regin hf., sem samsvarar 25% af útgefnum hlutum í félaginu. Lágmarksgengi í útboðinu var 12 krónur á hlut og þurftu tilboðsgjafar að lágmarki að bjóða í 2.000.000 hluti.

Alls óskuðu fjárfestar eftir að kaupa 608.453.911 hluti fyrir samtals 7.562.429.392 kr.

Tekið var tilboðum í 325.000.000 hluti og var heildarsöluverðmæti útboðsins 4.068.086.687 kr. Samþykkt voru tilboð sem voru á bilinu 12,20 – 12,81 krónur á hlut og var vegið meðalgengi samþykktra tilboða 12,52 krónur á hlut. Af samþykktum tilboðum þurfa einungis þeir fjárfestar sem buðu 12,20 krónur á hlut að sæta skerðingu.

Öll samþykkt tilboð miðuðust við það gengi sem viðkomandi tilboðsgjafi tilgreindi í tilboði sínu

Gjalddagi og eindagi greiðslu vegna útboðsins er klukkan 16:00 þann 10. júní 2013 og verða hlutir í Regin hf. afhentir kaupendum sama dag.

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. höfðu umsjón með sölu hlutanna.

Steinþór Pálsson bankastjóri segir:

„Í kjölfar hrunsins eignaðist Landsbankinn umtalsvert af stærri fasteignum vegna fjárhagserfiðleika viðskiptavina. Þeim eignum var komið fyrir í fasteignafélaginu Reginn og mikil áhersla var lögð á að losa þær frá bankanum eins hratt og auðið var, en þó með þeim hætti að viðhaft væri opið söluferli. Skráning Regins á markað fyrir ári og sala á 75% hlut, og nú á þeim hlut sem eftir stóð til fjölda fjárfesta, auk hagstæðrar þróunar á hlutafjárverði félagsins,  er allt vísbending um að vel hefur tekist til við þetta verkefni. Með þessu hefur bankinn reynst það hreyfiafl sem hann vill vera og náð því markmiði að stuðla að uppbyggingu hlutabréfamarkaðar á Íslandi sem er mikilvægt fyrir allt efnahagslífið.

Landsbankinn óskar nýjum eigendum og félaginu velfarnaðar í framtíðinni.“

Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru í fréttakerfi NASDAQ OMX Iceland hf. og á vef Landsbankans hf., www.landsbankinn.is þann 30. maí 2013. Í útboðinu var nýtt undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar, í samræmi við heimild í c-lið. 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi Þór Arason, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans hf.  Sími: 410 7335