Icelandic
Birt: 2013-05-31 11:07:14 CEST
TM hf.
Reikningsskil

Góð afkoma Tryggingamiðstöðvarinnar á fyrsta ársfjórðungi 2013

Á stjórnarfundi í dag samþykkti stjórn og forstjóri TM fyrsta árshlutauppgjör félagsins 2013. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu tölur úr árshlutareikningi TM fyrir fyrsta ársfjórðung 2013:

  • Heildarhagnaður tímabilsins eftir skatta var 522 m.kr. (1F 2012: 191 m.kr.)
  • Hagnaður fyrir skatta var 603 m.kr. (1F 2012: 242 m.kr.)
  • Framlegð af vátryggingastarfsemi var 223 m.kr. (1F 2012: -196 m.kr.)
  • Fjárfestingatekjur voru 509 m.kr. (1F 2012: 507 m.kr.)
  • Samsett hlutfall var 91,8% (1F 2012: 107,6%)
  • Eigin iðgjöld hækkuðu um 6% á milli ára
  • Eigin tjón lækkuðu um 17% á milli ára
  • Kostnaðarhlutfall hækkaði úr 24% í 26% milli ára.
  • Eigið fé félagsins nam 10.753 m. kr. í lok fyrsta ársfjórðungs 2013
  • Eiginfjárhlutfall í lok fyrsta ársfjórðungs 2013 var 33%
  • Arðsemi eigin fjár á fyrsta ársfjórðungi 2013 var 19,9% á ársgrunni (1F 2012: 6,2%)

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Við skilum góðum rekstrarniðurstöðum á fyrsta ársfjórðungi þar sem afkoma af vátryggingastarfsemi var betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Það hefur verið yfirlýst markmið okkar um árabil að bæta afkomu vátryggingastarfsemi TM þannig að hún standist samanburð við sambærileg norræn vátryggingarfélög. Rekstrarniðurstöður fyrsta ársfjórðungs, og raunar síðustu missera einnig, staðfesta að við erum komin vel á veg með þetta markmið okkar.

Mjög hörð samkeppni ríkir á íslenskum vátryggingamarkaði og því er afkomubatinn ekki til kominn vegna hækkunar iðgjalda heldur fyrst og fremst vegna lægri tjónakostnaðar. Við höfum lagt ríka áherslu á forvarnir í samstarfi við viðskiptavini okkar auk þess sem allt áhættumat er í stöðugri þróun. Þessar áherslur eiga án efa drjúgan þátt í fækkun tjóna hjá viðskiptavinum og lægri tjónakostnaði félagsins. Það ber þó að hafa það í huga að hér er eingöngu um einn ársfjórðung að ræða og sveiflur geta verið töluverðar milli tímabila eins og reynslan hefur sýnt.

Kynningarfundur

TM býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2013 í dag, 31. maí kl. 14.00. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24., 4. hæð. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.

 Nánari upplýsingar

Sigurður Viðarsson forstjóri s: 515-2609

sigurdur@tm.is


Frettatilkynning um afkomu TM 1F 2013.pdf
TM Arshlutareikningur 31 03 2013.pdf