Icelandic
Birt: 2013-05-16 23:41:57 CEST
Hagar hf.
Hluthafafundir

Hagar hf. - Aðalfundur 7. júní 2013

Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 7. júní 2013 og hefst hann kl. 09:00 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi í Kópavogi.

 

Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
  3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2012/13.
  4. Tillaga að nýjum samþykktum félagsins.
  5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  6. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
  7. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
  8. Tillögur stjórnar um arðgreiðslustefnu.
  9. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

 

Tillögur stjórnar Haga hf.:

 

  1. Ársreikningur (dagskrárliður 2)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að ársreikningur félagsins fyrir starfsárið 2012/13, ásamt skýrslu endurskoðanda, verði samþykktur.

 

  1. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2012/13 sem nemur 0,50 krónum á hlut, eins og fram kemur í ársreikningi félagsins. Heildararðgreiðslan nemur því tæpum 586 milljónum króna.

Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 12. júní 2013. Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2012/13 verður því 10. júní 2013, eða næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðgreiðslu verður 26. júní 2013.

 

  1. Nýjar samþykktir félagsins (dagskrárliður 4)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins meðfylgjandi tillögu að nýjum samþykktum. Stjórnin hefur í ljósi breytinga á hlutafélagalögum og reynslu af skráningu félagsins látið endurskoða samþykktir félagsins og uppfæra. Engar efnislegar breytingar eru gerðar frá því sem er í núverandi samþykktum en við þær aukið. Meðfylgjandi eru tillagan og greinargerð þar sem tilteknar eru helstu breytingar frá núgildandi samþykktum.

 

  1. Þóknun til stjórnarmanna (dagskrárliður 5)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem hér segir: Stjórnarformaður kr. 500.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr. 250.000,- á mánuði.

 

  1. Starfskjarastefna (dagskrárliður 6)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi starfskjarastefna verði samþykkt.

 

  1. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda (dagskrárliður 7)

Framboð til setu í stjórn Haga hf. skal berast skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um frambjóðendur verða birtar að þeim fresti loknum.

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG ehf., kt. 590975-0449, verði kosinn endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár. Endurskoðanda félagsins verður greitt í samræmi við útgefna og samþykkta reikninga.

 

  1. Arðgreiðslustefna (dagskrárliður 8)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi arðgreiðslustefna verði samþykkt.

 

Hluthafar sem ekki sjá sér fært að mæta til fundar og heimila ekki öðrum aðila til að mæta á fund í sínu umboði geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu á fundinum bréflega. Meðfylgjandi má finna nánari leiðbeiningar og atkvæðaseðil.

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar föstudaginn 24. maí nk. Hluthöfum er þó bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (þriðjudaginn 28. maí nk.) á netfangið adalfundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 51/2013. Kann endurskoðuð dagskrá að birtast þann dag. Hluthöfum er einnig  bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega skemmst 5 dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund.

Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.

 

Stjórn Haga hf.


Atkvaseill aalfundur 2013.pdf
Greinarger me samykktum Haga 2013.pdf
Leidbeiningar fyrir hluthafa_atkvaedagreidsla 2013.pdf
Tillaga a argreislustefnu Haga 2013.pdf
Tillaga a samykktum Haga 2013.pdf
Tillaga a starfskjarastefnu Haga 2013.pdf
Umbo fyrir aalfund 2013.pdf