Icelandic
Birt: 2013-04-29 18:47:04 CEST
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Lýsing - Skuldabréfaflokkur REG1 12 1

Það tilkynnist hér með að í dag verður birt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is, lýsing REG 1 fagfjárfestasjóðs sem er lánveitandi  Kvikmynda- og Knatthallarinnar ehf.  Kvikmynda- og Knatthöllin ehf. eru eigendur að fasteigninni Fossaleyni 1, betur þekkt sem Egilshöll og eru bæði félögin dótturfélög Regins hf.

Í lýsingunni má meðal annars finna verðmat á Fossaleyni 1 (Egilshöll) sem framkvæmt var af PricewaterhouseCoopers ehf., fyrir REG 1 fagfjárfestasjóð. Samkvæmt virðismati var virði fasteignarinnar metið á bilinu 6.364 - 6.880 milljónir kr., byggt á sjóðstreymismati núverandi leigusamninga. Í viðauka við lýsinguna má finna virðismatið í heild sinni.

REG 1 fagfjárfestasjóður er í umsýslu Stefnis hf.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262