Icelandic
Birt: 2013-04-24 18:17:52 CEST
Origo hf.
Reikningsskil

Uppgjör Nýherja á fyrsta ársfjórðungi 2013

Tap af rekstri á fyrsta ársfjórðungi

Helstu upplýsingar:

  • EBITDA nam 22 mkr og heildartap 123 mkr á fyrsta ársfjórðungi.
  • Umtalsvert tap af rekstri erlendra dótturfélaga.
  • Handbært fé í lok tímabilsins nam 298 mkr.
  • Stöðugur vöxtur og góð afkoma af sölu á eigin hugbúnaðarvörum.
  • Efnahagsóvissa heldur enn aftur af fjárfestingum fyrirtækja á Íslandi sem hefur neikvæð áhrif á vörusölu.
  • Vaxandi þjónustutekjur hjá Nýherja innanlands.

 

Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Afkoma af rekstri Nýherjasamstæðunnar er undir áætlun og umtalsvert tap var af rekstri erlendra dótturfélaga. Á innlendum markaði er samdráttur í vörusölu og virðist geta fyrirtækja til fjárfestinga í tæknibúnaði enn takmörkuð. Þjónustutekjur innlendra félaga jukust og gengið var frá mikilvægum þjónustusamningum í fjórðungnum.

Sala á Tempo, eigin hugbúnaðarlausn TM Software tvöfaldaðist frá fyrra ári og áfram eru horfur um góðan vöxt“.

 

Rekstrarniðurstaða á fyrsta ársfjórðungi 2013: Sjá fréttatilkynningu í viðhengi

 

 

Nánari upplýsingar:
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.

 


Frettatilkynning Nyherja hf Q1 2013 24 04 2013.pdf
Nyherji hf arshlutareikningur 31 3 2013.pdf