Icelandair Group gengur frá kaupum á tveimur Boeing 757 200 vélum
Icelandair Group hefur gengið frá kaupum á tveimur Boeing 757 200 vélum sem félagið hefur haft á langtímaleigu. Kaupverðið er trúnaðarmál. Vélarnar hafa sinnt leiguflugsverkefnum og munu halda því áfram. Icelandair Group sér einnig möguleika á að nýta vélarnar síðar í millilandaflugi félagsins.
Nánari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801
|