English Icelandic
Birt: 2013-04-08 10:59:07 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur mars 2013

Í mars flutti félagið 145 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 22% fleiri en í mars á síðasta ári. Framboðsaukning  á milli ára í mars nam 31%. Sætanýting var 79,3% og dróst saman um 1,7 prósentustig á milli ára.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 26 þúsund í mars sem er fækkun um 11% á milli ára.  Framboð félagsins í mars var dregið saman um 10% samanborið við mars 2012. Sætanýting nam 74,3% og jókst um 0,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 9% á milli ára.  Fraktflutningar drógust saman um 2% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 29% miðað við mars á síðasta ári. Herbergjanýting var 72,17samanborið við 70,4% í mars í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 145.074 22% 358.302 18%
Sætanýting 79,3% -1,7 %-stig 74,2% -1,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 526.363 31% 1.368.310 24%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 26.037 -11% 70.474 -10%
Sætanýting 74,3% 0,5 %-stig 70,7% 2,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000) 11.578 -10% 31.478 -12%
         
LEIGUFLUG MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 90,0% 6,7 %-stig 84,3% -2,8 %-stig
Seldir blokktímar 2.275 -9% 7.225 -11%
         
FRAKTFLUTNINGAR MAR 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 14.447 14% 39.508 8%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.000 -2% 22.509 2%
         
HÓTEL MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.940 25% 66.600 23%
Seldar gistinætur 16.671 29% 41.891 25%
Herbergjanýting 72,7% 2,3 %-stig 62,9% 1,1 %-stig

* BR.(%) = % breyting á milli ára

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 


Traffic Data - Mars.pdf