Icelandic
Birt: 2013-03-08 17:14:37 CET
Félagsbústaðir hf.
Reikningsskil

Ársreikningur Félagsbústaða fyrir árið 2012

Félagsbústaðir, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera sjálfbær. Félagið á og rekur 1790 almennar leiguíbúðir auk 307 þjónustuíbúða fyrir aldraða ásamt 115 litlum íbúðum í sambýlum fyrir fatlað fólk, eða samtals 2212 íbúðir í Reykjavík.

 

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða hf. á árinu 2012 námu 2.803 millj. kr., sem er 10% aukning tekna frá árinu á undan aðallega vegna verðlagshækkunar leigu og fjölgunar eigna í útleigu, aðallega sambýlum fyrir fatlað fólk sem félagið keypti í árslok 2011.

Rekstrargjöld námu samtals 1.391 millj. kr. og hækkuðu milli ára um 1,7%. Af einstökum rekstrarþáttum hækkaði viðhaldskostnaður eigna um 3,4% og nam 1,6% af verðmati eigna í árslok. Framlag til afskrifta leiguskulda lækkaði úr 96 millj. kr. í 54 millj. kr., eða um 46% og svaraði til um 1,8% af leigutekjum ársins miðað við 3,8% árið á undan.

Rekstrarhagnaður Félagsbústaða hf. fyrir vaxtagjöld, verðbætur lána og matsbreytingu fjárfestingaeigna jókst um 20% milli ára, úr 1.178 millj. kr. árið 2011 í 1.411 árið 2012.

Hrein vaxtagjöld námu 1.015 millj. kr. og jukust um 14% milli ára og nam vaxtaþekja rekstrarhagnaðar ársins 2012 1,39 miðað við 1,32 árið á undan.

Rekstrarafkoma Félagsbústaða hf. fyrir verðlagsbreytingar lána og matsbreytingu eigna nam 396 millj. kr. á árinu 2012 miðað við 284 millj. kr. árið á undan sem 39% aukning milli ára.

Verðbreyting lána nam samtals 1000 millj. kr. og hefur þá verið tekið tillit til 206 millj.kr. höfuðstólslækkunar láns frá Íslandsbanka hf., upphaflega með gengisviðmiði frá árinu 2008 en hefur nú verið breytt í óverðtryggt lán í íslenskum krónum. Ekki liggur fyrir hvaða áhrif undangengnir dómar Hæstaréttar hafa á endanlegt uppgjör lánsins.

Við mat á eignum Félagsbústaða til útleigu er stuðst við mat fasteignaskrár Þjóðskrár Íslands sem var í gildi í árslok 2012 að teknu tilliti til 7% hækkunar á vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli í Reykjavík frá febrúar 2012. Matsbreytingin fjárfestingaeigna félagsins nam 2.855 millj. kr. á árinu 2012 en var 3.934 millj. kr. árið 2011.

Hagnaður Félagsbústaða hf. nam 2.266 millj.kr. á árinu 2012 en var 2.926 millj.kr. árið 2011.

 

Efnahagsreikningur 31.12.2012

Heildareignir Félagsbústaða hf. í árslok 2012 námu tæpum 40 milljörðum kr. og jukust um 3,3 milljarða kr. á árinu, eða um 9%, aðallega vegna matsbreytingar fjárfestingaeigna félagsins á árinu.

Eigið fé félagsins nam 11 milljörðum.kr. í árslok 2012 og jókst um rúma 2 milljarða kr. milli ára, eða um 27%. Eiginfjárhlutfall var 28% í árslok 2012 en var 24% árið á undan.

Sjóðsstreymi

Veltufjármyndun rekstrar nam 405 millj. kr. á árinu 2012 og jókst um 38% frá árinu á undan. Handbært fé frá rekstri nam 335 millj. kr. á árinu sem er svipuð staða og árið á undan.

Á árinu 2012 keypti félagið 29 íbúðir og seldi 21 íbúð þ.m.t, 16 íbúðir í Yrsufelli 1-3 í Efra Breiðholti. Á meðal keyptra íbúða voru 12 íbúðir í 49 íbúða nýbyggingu, Fagrabergi, að Hólabergi 84 í samstarfi við Félag eldri borgara í Reykjavík. Íbúðirnar voru afhentar 20. desember og fjármagnaðar að hluta með með skammtímaláni frá viðskiptabanka félagsins. Þessi kaup ásamt kaupum á 4 íbúðum undir lok ársins samtals um 300 millj.kr. verða síðan fjármögnuð með 90% láni til langs tíma frá Íbúðalánasjóði.


Felagsbustair arsr 2012 us kr.pdf
Frettatilkynning Felagsbustair hf 2012.pdf
Lykiltolur ur uppgjori Felagsbustaa hf 2012.pdf