English Icelandic
Birt: 2013-02-13 10:24:09 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group og Boeing ganga frá samningum um kaup á 737 MAX

Sextán staðfestar pantanir og kaupréttur á átta vélum til viðbótar

Þann 6. desember sl. undirrituðu Icelandair Group og Boeing viljayfirlýsingu um kaup á Boeing 737 MAX flugvélum.  Endanlegir samningar eru nú frágengnir um kaup þess fyrrnefnda á sextán 737 MAX 8 og 737 MAX 9 flugvélum ásamt kauprétti á átta 737 MAX flugvélum til viðbótar. Um breytingu á fjölda staðfestra pantana er að ræða frá viljayfirlýsingunni.   Staðfestum pöntunum fjölgar um fjórar og verða sextán alls og kaupréttir verða átta í stað tólf áður. Vélarnar verða afhentar á árunum 2018-2021. Heildarverðmæti flugvélanna sextán samkvæmt listaverði Boeing er um 1,6 milljarðar bandaríkjadala, en kaupverðið er trúnaðarmál.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna að endanlegir samningar við Boeing hafa verið undirritaðir.  Þessi kaup munu styrkja stoðir Icelandair Group enn frekar og auka sveigjanleika og möguleika félagsins til frekari vaxtar. Fyrstu vélarnar munu koma í okkar rekstur á fyrri hluta árs 2018 og verða notaðar með núverandi flota af Boeing 757-200 vélum félagsins. Segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Pantaðar eru níu 737 MAX 8 vélar sem taka 153 farþega og sjö 737 MAX 9 vélar sem taka 172 farþega.  Til samanburðar taka Boeing 757-200 flugvélar Icelandair Group 183 farþega. Boeing 737 MAX vélarnar eru ný og endurbætt langdrægari útgáfa af núverandi Boeing 737 vélum. Eldsneytissparnaður samanborið við Boeing 757 vélarnar sem eru notaðar í flota félagsins nemur meira en 20% á sæti. 

 

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455.
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.