English Icelandic
Birt: 2013-02-06 17:55:06 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur janúar 2013

Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 109 þúsund og fjölgaði þeim um 17% miðað við janúar á síðasta ári.  Framboð í millilandafluginu var aukið um 23%. Sætanýtingin var 69,0% og lækkaði um 0,5 prósentustig í mánuðinum á milli ára. Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúm 21 þúsund í janúar og fækkaði um 7%.  Dregið hefur úr eftirspurn í innanlandsflugi  og hefur verið brugðist við með minna framboði.  Framboð í janúar var 12% lægra en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 66,0% samanborið við 63,1% í janúar 2012. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 7% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 10% á milli ára. Seldar gistinætur hjá Flugleiðahótelunum jukust um 27% á milli ára. Herbergjanýting var 46,6%, eða 0,9 prósentustigum hærri en í janúar 2012.

 

MILLILANDAFLUG JAN 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 109.089 17%
Sætanýting 69,0% -0,5 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 451.995 23%
     
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JAN 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 21.458 -7%
Sætanýting 66,0% 3,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000) 10.082 -12%
     
LEIGUFLUG JAN 12 BR. (%)
Flugvélanýting 75,0% -13,5 %-stig
Seldir blokktímar 2.704 -7%
     
FRAKTFLUTNINGAR JAN 12 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 13.225 11%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.444 10%
     
HÓTEL JAN 12 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.940 24%
Seldar gistinætur 10.694 27%
Herbergjanýting 46,6% 0,9 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 


Traffic Data - January.pdf