English Icelandic
Birt: 2013-01-30 15:42:20 CET
Icelandair Group hf.
Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs ársins 2012 ásamt breyttri dagsetningu fyrir birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs ársins 2013

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2012, fimmtudaginn 7. febrúar 2013. Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 8. febrúar 2013 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura.  Kynningin hefst kl. 16:30 í Víkingasal 5. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group munu kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt helstu stjórnendum.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is

Vinsamlegast athugið breytta dagsetningu fyrir birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2013.  Uppgjörið verður birt í viku 31 2013 í stað viku 32 2013 eins og áður hafði verið tilkynnt um.  Aðrar dagsetningar eru óbreyttar.

  • Aðalfundur, 13. mars 2013
  • Uppgjör 1. ársfjórðungs – vika 18, 2013
  • Uppgjör 2. ársfjórðungs – vika 31, 2013
  • Uppgjör 3. ársfjórðungs – vika 44, 2013
  • Uppgjör 4. ársfjórðungs – vika 06, 2014