Icelandic
Birt: 2013-01-23 10:00:40 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Kaup Regins hf. á Ofanleiti 2 lokið

Í tilkynningu Regins hf. þann 20. desember 2012 kom fram að Reginn hf. hefði gert kauptilboð um kaup á fasteign að Ofanleiti 2 með fyrirvara m.a um niðurstöðu á greiningu leigusamninga.  Enn fremur sendi Reginn frá sér tilkynningu þann 16. janúar sl. (leiðrétt 17. janúar) þar sem kom fram að eini fyrirvarinn tengdur kaupunum væri skuldaraskipti  á láni tengdu fasteigninni þar sem lánveitandi var OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður, sem er í umsýslu Stefnis hf.  Nú hefur öllum fyrirvörum verið eytt og  kaupsamningur milli Regins og SVÍV ses var undirritaður í dag 22. janúar.  Sama dag var gengið frá skuldaraskipti á láninu og mun Reginn yfirtaka lánið við OFAN SVÍV fagfjárfestasjóð.   Vísað er til lýsingar Fagfjárfestasjóðsins OFAN SVÍV sem birt var 28. desember s.l.

Kaupverðið er trúnaðarmál en áhrif kaupanna  eru áætluð  4 - 5% aukning á EBITDA Regins á ársgrundvelli.

Kaup þessi eru innan ramma fjárfestingastefnu Regins sem felur meðal annars í sér að auka hlut í skrifstofuhúsnæði.

 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262