Icelandic
Birt: 2013-01-22 09:48:49 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Jóhann Sigurjónsson tekur við sem fjármálastjóri Regins hf.

Vísað er í fréttatilkynningu Regins frá 12. desember 2012 um ráðningu nýs fjármálastjóra hjá Reginn hf.   Fyrirhugað var að Jóhann Sigurjónsson tæki við sem fjármálastjóri félagsins í mars nk.  Nú hefur orðið sú breyting á að frá og með þriðjudeginum 22. janúar 2013 mun Jóhann Sigurjónsson taka við sem fjármálastjóri Regins hf.  Hann tekur við af Önnu Sif Jónsdóttir sem hefur starfað sem fjármálastjóri félagsins frá árinu 2009.  Anna Sif Jónsdóttir mun á sama tíma láta af störfum og hverfa til starfa hjá MP banka.  Stjórn og starfsfólk Regins hf.  þakkar henni fyrir vel unnin störf fyrir Reginn og óskar henni jafnframt velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

 

Frekari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson.

Forstjóri Regins hf.

Sími:  5128900 / 8996262