Icelandic
Birt: 2013-01-18 17:40:52 CET
Ríkisútvarpið ohf.
Fyrirtækjafréttir

Stafræn sjónvarpsdreifing RÚV

Ríkiskaup, f.h. Ríkisútvarpsins tilkynnti í dag, föstudaginn 18. janúar 2013 um að ákveðið hafi verið að velja tilboð frá Fjarskiptum ehf. (Vodafone) í útboði nr. 15233 um stafræna sjónvarpsdreifingu, enda tilboðið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt matslíkani útboðslýsingar

Þegar um er að ræða innkaupaferli sem lýkur með vali kaupanda á tilboði skulu líða a.m.k. 10 dagar frá því að ákvörðun um val tilboðs er tilkynnt þar til tilboð er endanlega samþykkt, sbr. 76. gr. laga 84/2007. Að loknum þessum a.m.k. 10 dögum og að öllu óbreyttu, geta Ríkiskaup f.h. Ríkisútvarpsins samþykkt endanlega tilboð Fjarskipta.

Verði gerður samningur við Fjarskipti ehf. á gundvelli þessa tilboðs er gert ráð fyrir að það hafi ekki áhrif á heildarafkomu Ríkisútvarpsins.