Icelandic

Þessi tilkynning hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að skoða leiðrétta tilkynningu

Birt: 2013-01-16 18:00:01 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Kaup Regins hf. á fasteigninni við Ofanleiti 2 - Beiðni um skuldaraskipti

Vísað er í tilkynningu Regins hf. þann 20. desember 2012 um samþykki kauptilboðs með fyrirvara.

Kaupandi fasteignarinnar , Reginn A1 ehf., er  dótturfélag Regins atvinnuhúsnæðis ehf. sem er í eigu Regins hf.  Kaupandinn hefur ákveðið að óska eftir yfirtöku á áhvílandi láni sem hvílir á fasteigninni.  Lánveitandi er OFAN SVÍV fagfjárfestasjóður, sjóður sem er í vörslu Stefnis hf.  Þetta er eini fyrirvarinn sem út af stendur vegna kaupanna.  Gert er ráð fyrir að sá tímarammi sem nefndur var í tilkynningu Regins frá 20. desember 2012 um undirritun kaupsamnings í janúar 2012 gangi eftir.  Ef skuldaraskiptin verða ekki samþykkt þá er ljóst að ekki muni verða af kaupunum.  Vísað er í  tilkynningu frá Fagfjárfestasjóðnum OFAN SVÍV sem birt var 28. desember s.l. um skilmála skuldabréfaflokksins auk tilkynningar frá Stefni hf. frá 16. janúar um sama mál.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262