English Icelandic
Birt: 2013-01-07 17:36:44 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur desember 2012

Félagið flutti um 120 þúsund farþega í millilandaflugi í desember og voru þeir 20% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning  var 27% á milli ára. Sætanýting nam 72,7% samanborið við 74,3% í desember  2011.  Árið 2012 flutti félagið í heild rúmar 2 milljónir farþega sem er metfjöldi farþega frá upphafi.  Aukning farþega frá fyrra ári var 16%.

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúmlega 22 þúsund í desember sem er lækkun um 9% á milli ára.  Sætanýting nam 66,5% og jókst um 3,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 17% m.v. desember á síðasta ári. Fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra ásamt því að nýting leiguvéla minnkaði vegna viðhalds. Fraktflutningar drógust saman um 2% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 28% frá desember á síðasta ári. Herbergjanýting var 46,1% og var 2,5 prósentustigum hærri en í desember 2011. 

 

MILLILANDAFLUG DES 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 119.580 20% 2.020.377 16%
Sætanýting 72,7% -1,6 %-stig 80,6% 1,4 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 476.244 27% 7.175.753 16%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG DES 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 22.030 -9% 342.843 -1%
Sætanýting 66,5% 3,6 %-stig 69,2% 0,7%-stig
Framboðnir sætiskm. ('000) 10.534 -14% 177.786 -1%
         
LEIGUFLUG DES 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Flugvélanýting 79,2% -18,7 %-stig 91,3% -2,2 %-stig
Seldir blokktímar 2.404 -17% 31.104 -10%
         
FRAKTFLUTNINGAR DES 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 12.830 7% 181.902 8%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.440 -2% 89.381 15%
         
HÓTEL DES 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.946 28% 294.240 16%
Seldar gistinætur 10.582 35% 210.114 22%
Herbergjanýting 46,1% 2,5 %-stig 71,4% 3,5 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - December.pdf