Icelandic
Birt: 2012-12-18 17:07:24 CET
Hagar hf.
Fyrirtækjafréttir

Högum hf. hefur borist stefna frá Kaupás ehf.

Högum hefur í dag borist stefna frá Kaupás ehf. þar sem félagið höfðar mál á hendur Högum hf. til heimtu skaðabóta.  Aðalkrafa er að upphæð 233.351.961 krónum auk vaxta frá janúar 2009.  Varakröfur nema lægri upphæðum.

Í Skráningarlýsingu félagsins þann 26. nóvember 2011 var fjallað um framangreint mál og hugsanlega málshöfðun.  Málið á rætur að rekja til hugsanlegs tjóns sem Kaupás heldur fram að Krónan hafi orðið fyrir í svokölluðu mjólkurverðstríði á árunum 2005-2006.

Afstaða Haga er skýr.  Félagið telur að Kaupás ehf. hafi ekki orðið fyrir skaða, enda hafði Kaupás frumkvæði að umræddu verðstríði og undirverðlagningu.  Hagar munu taka til varna í málinu.

 

   

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.