English Icelandic
Birt: 2012-12-06 11:18:07 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Icelandair Group og Boeing undirrita viljayfirlýsingu

Leiðrétting:  Heildarverðmæti flugvélanna 12 samkvæmt listaverði Boeing er um 1,2 milljarðar bandaríkjadala, en kaupverð er trúnaðarmál. Verð í ISK sem tilgreint var í fyrri tilkynningu var ekki rétt.

 

Icelandair Group og Boeing hafa undirritað viljayfirlýsingu um pöntun á 12 737 MAX8 og 737 MAX9 flugvélum með kauprétti á 12 flugvélum til viðbótar.

Um er að ræða nýjar gerðir flugvéla og er áætlað að fyrstu vélarnar komi í rekstur flugfélaga árið 2017. Icelandair mun taka við fyrstu vélunum af þessum gerðum á fyrri hluta árs 2018, eða eftir rúmlega 5 ár.

Pantaðar eru átta 737 MAX 8 vélar sem taka 153 farþega og fjórar 737 MAX 9 vélar sem taka 172 farþega miðað við sætafjölda Icelandair.  Til samanburðar taka Boeing 757-200 flugvélar Icelandair 183 farþega.

Heildarverðmæti flugvélanna 12 samkvæmt listaverði Boeing er um 1,2 milljarðar bandaríkjadala, en kaupverð er trúnaðarmál. Fyrirhugað er að fjármagna kaupin með sjóðstreymi frá rekstri og hefðbundinni flugvélafjármögnun þegar þar að kemur. Viðræður hafa átt sér stað við Export-Import Bank of the United States varðandi stuðning bankans við fjármögnun vélanna. Samkvæmt áætlunum félagsins hafa kaupin ekki áhrif á núverandi arðgreiðslustefnu.

Boeing 737 MAX vélarnar eru ný og endurbætt langdrægari útgáfa af núverandi Boeing 737 vélum. Á þeim verða nýir og sparneytnari hreyflar sem lækka eldsneytisnotkun um 13% á sæti frá því sem nú er.  Eldsneytissparnaður samanborið við Boeing 757 vélarnar sem eru notaðar í flota Icelandair nemur meira en 20% á sæti. 

Icelandair mun áfram nota Boeing 757 flugvélar í áætlunarflugi sínu með nýju flugvélunum enda henta þær einstaklega vel fyrir leiðakerfi félagsins sem nær til Evrópu og Norður-Ameríku. Nýju flugvélarnar munu bætast við og stækka flotann og auka sveigjanleika félagsins og möguleika á frekari vexti. Þær hafa flugdrægni til áfangastaða í Norður-Ameríku og Evrópu og gefa Icelandair nýja möguleika til aukinnar tíðni og fjölgunar áfangastaða og þá sérstaklega yfir vetrartímann sem minnkar árstíðasveiflu í rekstri félagsins.

„Icelandair Group hefur að undanförnu kannað rækilega alla þá fjölmörgu kosti sem flugvélaframleiðendur bjóða til þess að styrkja og þróa áætlunarflug Icelandair til framtíðar. Sú niðurstaða sem hér er kynnt er afrakstur þeirrar vinnu og er okkur mikið ánægjuefni. Félagið hefur átt farsælt samstarf við Boeing um áratugaskeið og ljóst að framhald verður á því“, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Icelandair Group mun halda kynningarfund fyrir fréttamenn og markaðsaðila kl. 12.00 í dag, fimmtudaginn 6. desember, á Icelandair Hotel Reykjavík Natura. Þar munu Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group, Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri Icelandair og Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group svara fyrirspurnum.

  

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, sími: 896-1455.
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, sími: 665-8801.