Icelandic
Birt: 2012-11-19 10:12:27 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. semur um endurfjármögnun Smáralindar

 

Reginn hefur lokið öðrum áfanga  í endurfjármögnun félagsins. Í framhaldi af viðræðum og öflun tilboða í fjármögnun þá hefur félagið  tryggt endurfjármögnun Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf.  að fjárhæð 9 milljörðum króna.  Fjármögnunin er verðtryggð til  30 ára og ber 3,95% fasta vexti.  Heimilt er að greiða upp lánið eftir 5 ár. Fjármögnunin er með jöfnum afborgun og greiðsluferlið er 30 ár. Um er að ræða eignatryggða fjármögnun og er lánveitandi REG 2 fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf. Þegar hefur verið samið um helstu skilmála með fyrirvara um áreiðanleikakönnun.  Áætlaður ávinningur félagsins vegna lægri vaxtakjara er um 100 m.kr. á ársgrundvelli.

Reginn hf. er öflugt skráð fasteignafélag, þar sem Smáralind er stærsta einstaka eign félagsins. Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins um 62 þúsund fermetrar, en þar af eru rúmlega 41 þúsund leigjanlegir fermetrar.  Útleiguhlutfall Smáralindar er 98%.  Í Smáralind eru 98 leigutakar sem eru með leigusamninga um verslun, veitingar,  þjónustu, kvikmyndahús og skemmtigarð.  Leigjanlegum fermetrum hefur fjölgað í Smáralind síðustu ár á kostnað sameignarfermetra.  Við Smáralind eru um 3.000 bílastæði, bæði í bílastæðishúsum og umhverfis verslunarmiðstöðina.

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins telur 31 fasteign og er heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins um 158 þúsund fermetrar, yfir 94% leigjanlegir fermetrar eru í útleigu.

Stefnir hf. er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 340 milljarða króna í virkri stýringu. Stefnir hefur meðal annars sérhæft sig á sviði eignatryggðrar fjármögnunar og unnið fjölmörg verkefni á því sviði.

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262