English Icelandic
Birt: 2012-10-08 11:26:41 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur í september 2012

Fjöldi farþega í millilandaflugi 18% fleiri en í september 2011

Félagið flutti 198 þúsund farþega í millilandaflugi í september og voru þeir 18% fleiri en í september á síðasta ári. Framboðsaukning  var 17% á milli ára. Sætanýting nam 81,0% samanborið við 78,0% í september  2011.  Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum.

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúmlega 28 þúsund í september sem er lækkun um 5% á milli ára.  Sætanýting nam 70,0% og jókst um 4,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 5% m.v. september á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra.  Fraktflutningar jukust um 14% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 24% frá september á síðasta ári. Herbergjanýting var 76,5% og var 4,1 prósentustigum lakari en í september 2011.

 

MILLILANDAFLUG SEP 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 198.207 18% 1.597.757 15%
Sætanýting 81,0% 3,0 ppt 81,7% 2,1 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 714.056 17% 5.571.273 14%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG SEP 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 28.233 -5% 266.161 0%
Sætanýting 70,0% 4,1 ppt 68,5% -0,8 ppt
Framboðnir sætiskm. ('000) 15.266 -6% 143.780 2%
         
LEIGUFLUG SEP 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 7,7 ppt 92,3% 0,0 ppt
Seldir blokktímar 2.578 -5% 24.009 -10%
         
FRAKTFLUTNINGAR SEP 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 1.313 10% 138.782 7%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.911 14% 66.211 18%
         
HÓTEL SEP 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.200 24% 226.154 14%
Seldar gistinætur 16.989 18% 170.312 20%
Herbergjanýting 76,5% -4,1 ppt 75,3% 3,7 ppt

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-70


Traffic Data - September 2012.pdf