Icelandic
Birt: 2012-09-28 18:33:05 CEST
Kópavogsbær
Reikningsskil

Árshlutauppgjör

 

Meðfylgjandi er óendurskoðað og ókannað árshlutauppgjör Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2012. Uppgjörið er gert í samræmi við lög og reglugerðir en þó þannig að ekki eru samdar sérstakar skýringar með uppgjörinu aðrar en þær sem eru í meðfylgjandi greinargerð.  Uppgjörið er notað innanhúss til að athuga hvernig rekstrarkostnaður hefur þróast og myndar það grunn að útkomuspá ársins 2012 og fjárhagsáætlun ársins 2013.

 

Í uppgjörinu kemur fram að aðalfrávikið frá áætlun ársins 2012 liggur í fjármagnsliðum. Er þar aðallega um að ræða hærri reiknaðar verðbætur  en áætlað var.

 

Samkvæmt uppgjörinu eru heildartekjur heldur hærri en áætlað hafði verið sem og rekstrargjöld, sem hækka þó ekki eins mikið og tekjurnar.

 

Almennur rekstur bæjarsjóðs hefur í stórum dráttum verið í takti við þá áætlun sem unnin var í lok síðasta árs.

 

Nánari upplýsingar veitir: Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, í síma: 696 0663

 

 


Arshlutareikn-6m-Samsta-2012.pdf
Greinarger-06-2012.pdf