English Icelandic
Birt: 2012-09-07 02:07:55 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur ágúst 2012

Metfjöldi farþega í millilandaflugi félagsins í ágúst

Félagið flutti 271 þúsund farþega í millilandaflugi í ágúst eða fleiri en nokkru sinni fyrr í ágústmánuði og voru þeir 9% fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning  var 12% á milli ára. Sætanýting nam 84,9% samanborið við 85,3% í ágúst  2011.  Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 19% og voru þeir 50% af farþegum félagsins.

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru  36,9 þúsund í ágúst sem er lækkun um 3% á milli ára.  Sætanýting nam 69,3% og dróst saman um 4,9 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% m.v. ágúst á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra.  Fraktflutningar jukust um 5% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 5% frá ágúst á síðasta ári. Herbergjanýting var 88,1% og var 5,8 prósentustigum hærri en í ágúst 2011.

 

MILLILANDAFLUG ÁGÚ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 271,025 9% 1.400.103 14%
Sætanýting 84,9% -0,4 %-stig 81,8% 2,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 923.995 12% 4.857.217 13%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG ÁGÚ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 36.920 -3% 238.719 0%
Sætanýting 69,3% -4,9 %-stig 68,1% -1,7 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000) 23.995 10% 128.605 3%
         
LEIGUFLUG ÁGÚ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Flugvélanýting 92,0% 7,4 %-stig 91,4% -0,9 %-stig
Seldir blokktímar 2.778 -11% 21.431 -10%
         
FRAKTFLUTNINGAR ÁGÚ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 19.026 2% 121.846 7%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 6.399 5% 58.515 19%
         
HÓTEL ÁGÚ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 33.784 5% 203.954 13%
Seldar gistinætur 29.755 12% 153.323 20%
Herbergjanýting 88,1% 5,8 %-stig 75,2% 4,4 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason,framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir,forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group,s: 840-7010


Traffic Data August 2012.pdf