Icelandic
Birt: 2012-08-30 10:53:52 CEST
Íslandsbanki hf.
Árshlutareikningur - 6 mán.
Islandsbanki hf. : Afkoma Íslandsbanka á fyrsta árshelmingi 2012
Afkoma Íslandsbanka á fyrsta árshelmingi 2012

Yfirlit yfir helstu niðurstöður
(lengri afkomutilkynnning meðfylgjandi):

  * Hagnaður eftir skatta var 11,6
milljarðar samanborið við 8,1 milljarð á
    fyrsta árshelmingi 2011.
  *
Hagnaður eftir skatta af reglulegri starfsemi, þ.e. hagnaður eftir frádrátt
   
einskiptiskostnaðar, s.s. hreinnar virðisbreytingar á lánabókinni,
   
gangvirðisbreytinga vegna breyttra reikningsskilaaðferða, kostnaðar sem
   
tengist sameiningunni við Byr og virðisrýrnunar viðskiptavildar og nettó
   
hagnaðar vegna aflagðrar starfsemi, var 7,2 milljarðar á árshelmingnum,
   
samanborið 7,7 milljarða á sama tímabili í fyrra.
  * Nettó tekjufærsla vegna
endurmats lánasafnsins var jákvæð um 2,1 milljarð á
    fyrsta árshelmingi,
samanborið við gjaldfærslu upp á 255 milljónir á sama
    tímabili í fyrra.
  *
Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 17,9% á tímabilinu, samanborið við
   
12,9% á fyrsta árshelmingi 2011.  Arðsemi tímabilsins af reglulegri
   
starfsemi var 11,1% á þessum árshelmingi, samanborið við 12,4% sama tímabili
  
 árið 2011.
  * Um 18.700 einstaklingar og um 3.200 fyrirtæki hafa fengið
afskriftir,
    eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum frá stofnun bankans sem
nemur um
    394 milljörðum króna.
  * Heildareignir við lok fyrsta árshelmings
námu 789,9 milljörðum, samanborið
    við 792,4 milljarða í lok mars 2012.
  *
Heildarinnlán við lok fyrsta árshelmings námu 499,8 milljörðum, samanborið
   
við 509,3 milljarða við lok mars 2012.
  * Vaxtamunur var 4,0% á fyrsta
árshelmingi, samanborið við 4,8% fyrir sama
    tímabil 2011.
  * Tveir nýir
flokkar sértryggðra skuldabréf voru seldir til breiðs hóps
    fagfjárfesta á
fyrsta árshelmingi að heildarfjárhæð 3,3 milljörðum króna sem
    voru síðar
stækkaðir í 4,8 milljarða.  Heildarútgáfa sértryggðra skuldabréfa
    stendur
nú í 8,8 milljörðum króna.
  * Eigið fé nam 135,5 milljörðum í lok tímabilsins,
sem er hækkun um 10% frá
    árslokum 2011.  Eiginfjárhlutfall var 23,5% í lok
tímabilsins, sem er
    töluvert umfram það 16% lágmark sem FME setur
bankanum.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka

"Hálfsársuppgjörið
endurspeglar vel fjárhagslegan styrk bankans. Íslandsbanki
skilar góðri
arðsemi, lausafjárstaða er mjög sterk og eiginfjárhlutfall bankans
er, líkt og
fyrr, vel yfir lágmarkskröfum Fjármálaeftirlitsins.

Þóknanatekjur bankans hafa
aukist um 47% á milli ára sem má rekja til
sameiningar Íslandsbanka og Byrs,
innkomu Borgunar í samstæðuna auk þess sem
umsvif hafa aukist á
verðbréfamörkuðum. Sameiningin hefur hinsvegar einnig haft
í för með sér
einskiptiskostnað sem endurspeglast í hærri kostnaðarhlutföllum.
Við gerum ráð
fyrir að samlegðaráhrifin af sameiningunni verði komin að fullu
fram á næsta
ári.

Útlánaeftirspurn fer vaxandi og hafa ný útlán til einstaklinga og
fyrirtækja
aukist á tímabilinu. Þá hefur ERGO, fjármögnunarþjónusta
Íslandsbanka, veitt
jafn mikið af nýjum útlánum á fyrsta helmingi þessa árs og
allt síðasta  ár.

Verkefnastaða tengd markaðsviðskiptum og fyrirtækjaráðgjöf
er sterk og  allt
stefnir í að þau verkefni muni hafa jákvæð áhrif á þróun og
uppbyggingu
hlutabréfa- og fjármálamarkaðar á næstu misserum. Íslandsbanki
seldi 10,29% hlut
í Icelandair Group hf. á tímabilinu en það samræmist stefnu
okkar að minnka
eignarhluti í félögum óskyldum rekstri.

Sú jákvæða þróun sem
virðist eiga sér stað í íslensku atvinnulífi er ánægjuleg
en það er þó
mikilvægt að hafa í huga að ástandið er brothætt. Þar ráða
erlendar
markaðsaðstæður miklu auk þess sem ýmsir óvissuþættir eru enn fyrir
hendi hér á
landi."

Síðar í dag munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, og Jón Guðni
Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á
opnum fjárfestafundi og svara
fyrirspurnum.

Fundurinn hefst kl. 16.00 og fer
fram á íslensku.

Hægt verður að nálgast fundargögn frá kynningunni
á
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

  * Tími: 16.00

  * Staðsetning:
Íslandsbanki, Kirkjusandur 2, 5. hæð

  * Skráning: Vegna aðgangsmála er
nauðsynlegt að gestir skrái sig á
    afkomukynninguna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-
   
islandsbanka/fjarfestatengsl/opinn-fjarfestafundur-2012

Nánari upplýsingar
veita


[HUG#1637303]

 


ISB 1H12 Afkomutilkynning.pdf
ISB 1H12 Condensed Interim Financial Statements.pdf
ISB 1H12 Financial Results Presentation.pdf