English Icelandic
Birt: 2012-08-24 13:55:39 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Þrír nýir áfangastaðir bætast við alþjóðlegt leiðakerfi félagsins á næsta ári

Anchorage í Alaska, St. Pétursborg í Rússlandi og Zurich í Sviss

Ákveðið hefur verið að hefja áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða í millilandaflugi félagsins á næsta ári. Það eru borgirnar Anchorage í Alaska, St. Pétursborg í Rússlandi og Zurich í Sviss. Unnið er að frágangi heildarflugáætlunar fyrir árið 2013 og verður hún kynnt á næstunni.

Flugið til Anchorage hefst 15. maí og flogið verður tvisvar í viku til 15. september. Með fluginu eru nýttir þeir möguleikar sem felast í leiðakerfi félagsins og flugfarþegum á leið milli Alaska og Evrópu boðin styttri og hagkvæmari ferðatilögun en áður þekkist. Auk þess höfða Alaska og Ísland um margt til sömu markhópa sem spennandi áfangastaðir fyrir útivistarfólk og náttúruunnendur.

Flugið til St. Pétursborgar hefst 1. júní og flogið verður tvisvar í viku til 17. september. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á beint áætlunarflug á milli Íslands og Rússlands og því um tímamót í samgöngusögunni að ræða. Með fluginu eru einnig nýttir þeir möguleikar sem felast í leiðakerfi félagsins og tengiflugi milli Rússlands og Bandaríkjanna.

Flugið til Zurich verður tvisvar í viku frá 1. júní til 14. september. Flugið mun styrkja félagið á ferðamannamarkaðinum í Mið-Evrópu og jafnframt auka valkosti félagsins í fluginu milli Norður-Ameríku og Evrópu.