Reginn hf. gerir samninga um viðskiptavakt við Landsbankann og Íslandsbanka
Reginn hf (REGINN) hefur gert samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Samningurinn tekur gildi frá og með 2. Júlí 2012. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf REGINN í NASDAQ OMX Nordic í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé REGINN, að lágmarki kr. 500.000 að nafnvirði á gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5 % og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 50.000.000,- að markaðsvirði.
Reginn hf (REGINN) hefur gert samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Samningurinn tekur gildi frá og með 2. Júlí 2012. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf REGINN í NASDAQ OMX Nordic í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Íslandsbanki mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé REGINN, að lágmarki kr. 500.000 að nafnvirði á gengi sem Íslandsbanki ákveður í hvert skipti. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5 %. Eigi ISB viðskipti með bréf félagsins fyrir 5.000.000 kr. eða meira að nafnvirði í sjálfvirkri pörun („automatch“) innan dags, falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags.
|