English Icelandic
Birt: 2012-06-20 10:31:00 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Íslandsbanki hf. hyggst minnka eignarhlut sinn í Icelandair Group hf

Íslandsbanki hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu 5% eignarhlut í Icelandair Group hf. Núverandi eignarhlutur Íslandsbanka nemur 19,99%. Endanleg stærð þess eignarhlutar sem seldur verður, mun ráðast af verðtilboðum fjárfesta.

Markaðir Íslandsbanka hafa umsjón með sölu hlutanna. Sala hlutanna fer fram 21. og 22. júní í lokuðu útboði í samræmi við við c-lið 1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Nánari upplýsingar veita:

Guðný H. Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka í síma 844 3678

Elmar Svavarsson, forstöðumaður Verðbréfamiðlunar Íslandsbanka í síma 844 4452